Til að bregðast við minnkandi sölu, sem fyrirtækið telur að stafi einna helst af síaukinni ólöglegri fjölföldun á tónlist, hyggst plötufyrirtækið Skífan læsa geisladiskum sem það gefur út svo að ekki sé hægt að spila þá í tölvum og þá ekki hægt að afrita þá. Einnig hyggst Skífan lækka verð á nýjum og nýlegum geisladiskum um allt að 9%. Í sameiginlegri tilkynningu aðstandenda Norðurljósa, sem eiga Skífuna, fulltrúa Samtaka flytjenda og hljómplötuframleiðenda og Samtaka tónskálda og eigenda...