KSÍ efnir til kynningar á knattspyrnu kvenna í Vetrargarðinum, Smáralind nk. laugardag, 16. mars, milli kl. 14 og 17. KSÍ hvetur iðkendur í yngri flokkum og allar stelpur sem hafa áhuga á að leika knattspyrnu til að mæta. Leikmenn A-landsliðs kvenna veita eiginhandaráritanir og stúlkur sem koma með myndavélar geta þær látið taka mynd af sér með leikmönnum landsliðsins. KSÍ gefur 3000 plaköt með mynd af A-landsliðinu og 3000 boðsmiða á leik Íslands og Spánar sem fer fram 30. maí nk. Ungum gestum gefst lika kostur á að reyna að skora úr víti hjá markverði landsliðsins.

P.S. meðfylgjandi mynd er af ungum knattspyrnukonum (ég er þessi með kúl húfuna=)
Don't take life too seriously… You'll never get out of it alive anyway :)