Ég var ansi sáttur við tónleikana nema hvað hljóðkerfið var ömurlegt! Ég var búinn að búast við mikið þéttari hljóm, ég veit ekki hvort það voru maiden menn eða RR sem sá um hljóðkerfið en það var ekki nógu gott, eitthvað sem maður sættir sig ekki við þegar maður er að borga 7500 fyrir miðann. En engu að síður var sviðframkoman æðisleg eins og búast mátti við og ansi góð stemning í salnum.