Þróun þessara nýju bíla er vægast sagt slæm. Ég er alls enginn Honda maður en mér fannst þó Civic 92-95 flottur. Þessi nýjasti Civic (aðallega hatchbackinn) finnst mér töluvert ljótur. Sama er með mk5 Golfinn, ég sá myndir, sem eru reyndar ekki staðfestar, sem voru alveg hrikalegar. Þessi bíll var örugglega 1,5 tonn og leit út eins og Megane Scenic.