Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Getraun 1 (11 álit)

í Körfubolti fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Mig langar mikið til að hjálpa til að virkja þetta áhugamál. Ég hef haft brennandi áhuga á NBA í 13 ár en það er frekar stutt síðan ég tók eftir þessu áhugamáli hér á hugi.is. Mér datt í hug hvort það væri ekki sniðugt að hafa smá getraun. Það verða enginn verðlaun. Svörin verða send á mig og ég greini frá sigurvegaranum. Sendið bara póstin á hugapóstinn minn. Spurningarnar verða 10 og sá sem getur flestar spurningarnar rétt hann vinnur. Jafnvel verða síðan aðrar getraunir ef þessi á eftir...

Hvaða fótboltaleik á ég að kaupa í PS2?? (3 álit)

í Leikjatölvur fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég ætla að kaupa mér fótboltaleik í PS2. Ég hef prófað Fifa 2003. Mér finnst hann að mörgu leyti ágætur og gæti trúað því að hann endist mun betur heldur en gömlu Fifa leikirnir. Mér gekk ansi illa í semi pro (næst erfiðustu stillingunni í Fifa 2003) sem mér finnst mjög gott og í auðveldustu stillingunni þá var maður svo sem ekkert að brillera heldur þannig að endingin í Fifa 2003 ætti að vera ágæt. Hvað með þessa leiki eins og This is football, Pro Evolution soccer og ISS Pro. Er eitthvað...

Könnun yfir bilanatíðni bíla? (18 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Veit einhver hvar ég get séð þannig könnun? Annaðhvort á netinu eða í einhverju blaði??? Ekkert amerískt. Helst eitthvað á þýsku eða sænskt. Ég treysti bretunum ekki alveg nógu vel.

BMW E39 (8 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Jæja, ég er að leita mér að BMW E39 og hef verið að skoða nokkra slíka og er með nokkrar spurningar og pælingar. Eru þetta ekki bara góðir bílar? Ég er að vonast til að fá bara 520 eða jafnvel 523 og reyna að fá einhvern sem er sem ódýrastur. Ég var að vesenast á netinu og fann óljósar upplýsingar að ég ætti að sleppa 523 og 528, þ.e. varast 2.5 l og 2.8 l vélarnar. Vitið þið eitthvað um eitthvað þekkt vandamál með þessar fyrrnefndu vélar? Eyða þessir bílar nokkuð svo óskaplega mikið? Bila...

Golf GTi 16v (3 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 1 mánuði
Til sölu Golf GTi 16v. Fyrst skráður 1988. Ekinn 142000 km. Steingrár. Pipercross loftsía. Kraftkútur. Aksturstölva. Blá ljós í mælaborði. Um það bil 900 kg og 150 hö. Gríðarlega snöggur bíll. Nýr gírkassi. Nýr diskar allan hringinn. Nýr rafgeymir. Ný kerti. Reikningar fyrir ca. 200000 krónur. Mjög góð vél og mjög góður gírkassi. Um 7 sekúndur í 100 km hraða. Lækkaður. Verð um 100000 kr. Þarf að seljast sem fyrst.

Til sölu: MK2 Golf GTi 16v (4 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Golf GTi 16v ‘86 til sölu. Dökkgrársanseraður, ekinn 141.000 km. Blá ljós í mælaborði. Appelsínugular nálar. Aksturstölva. Lækkaður. Kraftkútur. Pipercross loftsía. Leðurklæddur í gírstöng og handbremsu. Geislaspilari. 1.8 lítra vél DOHC. 140 hö original. Mikið endurnýjaður. Nýr gírkassi úr ’90 bíl. Nýr rafgeymir. Ný kerti. Nýjir diskar að framan. Yfirfarinn bensíndæla. Mjög vel með farinn bíll. Nýskráningardagur 1988. Innfluttur frá Þýskalandi 1988. Í góðu standi. Smá tjón á frambretti....

hvað er sportbíll? (65 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hugtakið sportbíll er hugtak sem er komið í tóma vitleysu. Í mogganum um daginn kynnti Brimborg Saxo sem sportbíll. Um daginn sagði Minnskalli eitthvað á þá leið að Sunny GTi væri, bara einhver bíll fyrir 17 ára gutta, en integran hans væri skemmtilegur sportbíll. Mér finnst satt að segja Integra type-r og Sunny GTi vera líkir bílar. Einhverjum hérna á huga fannst sniðugt að kalla Sunny GTi, Sunny-get-ekki, því að einhver vinur hans hafi átt Sunny GTi sem væri í slæmu ástandi og byrjaði að...

Byssunotkun lögreglu (49 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Já, ég hef aðeins verið að pæla í lögreglunni í ljósi skotárásarinnar í Breiðholtinu á Sunnudaginn. Núna síðusta sunnudagskvöld var skotárás við ÍR heimilið sem ég varð vitni af og eftir að hafa pælt í þessu þá held ég að það sé ekki úr vegi að íhuga hvort lögreglumenn séu í stakk búnir fyrir þessa menn. Ef þessir menn sem eiga í hlut í þessari skotárás séu reiðubúnir að skjóta hvorn annan niður þá tel ég það vera alveg eins líklegt að lögreglumenn gætu lent í því að skotið sé á þá. Ég meina...

Hiphop eftir 40 ár? (22 álit)

í Hip hop fyrir 23 árum
Ég ætlaði bara að segja svolítið hérna í kjölfar greinar um B-Ruff mixteipið. Það var einhver gaur, (bullshit), sem sagði skoðun sína um B-Ruff mixteipið og hann fékk að heyra að hann væri fáfróður um hiphop, af því að hann fílaði mixteipið ekki. Ég man þegar ég var yngri þá vorum við félagarnir eitthvað að hlusta á hiphop og þá var þetta alltaf metnaður á milli manna hvor vissi meira um Hiphop. Þetta virðist ennþá vera til staðar. Ef þið mundið fara á McDonalds og fá ykkur Beikonborgara...

GT3 (8 álit)

í Bílar fyrir 23 árum
Er enginn ykkar eitthvað að leika sér í GT3 demoinu? Ég er með hann og ég segi bara váááá, þetta verður mikið mun betri leikur en GT2. Grafíkin er alveg ótrúleg, bara eins og að horfa á video. Gameplay er kannski ekki alveg eins skemmtilegt allaveganna í demoinu en þetta er enu að síður betri leikur. Samt var demoið ekki fullklárað, leikurinn verður enn betri í raun. Demoið bíður upp á 600 hö Nismo Skyline, Porsche turbo 4x4 og einn annan 400 hö og 2 brautir sem voru í GT2 og þær eru miklu...

STUTT HÁR!!! (21 álit)

í Tíska & útlit fyrir 23 árum
Ég er dálítið þreytt á því hvað íslendingar treysta mikið á landa sína. Fyrst þið eruð nú á þessum umræðuvefi ættuð þið að lesa Vogue og öll helstu tískublöðin og ættuð að vita að stutt hár er í tísku, ekkert sítt að aftan, ekkert sítt hár. Af hverju haldið þið að Jennifer Aniston sé komin með stutt hár? Hún er með þetta á hreinu. Ég er annars ekki að segja að ég fylgi tískunni eins og hundur. En pælið í því, því síðara sem hárið er því eldra er það, það er svo miklu ferskara að vera með...

eru geimverur nokkuð til? (8 álit)

í Geimvísindi fyrir 23 árum
af hverju ættu geimverur að vera til? Þap eru enginn rök eða sönnun sem mælir með því að geimverur séu til. Hver er ykkar skoðun um þetta efni?

Hvernig bíla eigið þið? (33 álit)

í Bílar fyrir 23 árum
Þessi spurning hefur kannski komið áður, allaveganna missti ég af henni. Hvernig bíla eigið þið og kannski eitthvað meira um þá?

Hvernig væri að hittast á kvartmílubrautinni um helgina? (1 álit)

í Bílar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þetta er hugmynd. Það er gott veður núna, þurrt og ég held að brautin sé þurr núna. Það dimmir svona hálf 9. Engar reglur, bara fólk kemur. Auðvitað skemmtilegast að fólk á kraftmeiri bílum komi, þótt það sé kannski ekkert skilyrði. Einhver sem styður þessa hugmynd?

Hvernig væri að hittast á kvartmílubrautinni í dag (25 álit)

í Bílar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég er með þessa hugmynd. Við gætum hisst í dag á kvartmílubrautinni. Engar reglur, allir mega koma. Þótt það sé betra að menn séu að bílum með einhvern kraft. Það dimmir klukkan ca. 8.30. Brautinn á að vera þurr núna. Einhver sem styður mína hugmynd?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok