Er enginn ykkar eitthvað að leika sér í GT3 demoinu?

Ég er með hann og ég segi bara váááá, þetta verður mikið mun betri leikur en GT2.

Grafíkin er alveg ótrúleg, bara eins og að horfa á video. Gameplay er kannski ekki alveg eins skemmtilegt allaveganna í demoinu en þetta er enu að síður betri leikur. Samt var demoið ekki fullklárað, leikurinn verður enn betri í raun.

Demoið bíður upp á 600 hö Nismo Skyline, Porsche turbo 4x4 og einn annan 400 hö og 2 brautir sem voru í GT2 og þær eru miklu flottari.

Ég sé ekki fram á að ég eigi eftir að fara neitt út þegar leikurinn kemur. Það er kannski ekkert slæmt eftir allt að vera bílprófslaus ef leikurinn kemur út í Júlí/ágúst.

Síðan verða bílategundir í GT3 sem vantaði í GT2 og sumar druslur sem enginn keypti hent í burtu. Mig langar að fá Saab og Volvo og notaða bíla hjá öllum, ekki bara ameríska og japanska. Ferrari má bara eiga sig.