Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

jgt
jgt Notandi frá fornöld 104 stig

Re: TILBOÐ

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ég skal með glöðu geði segja þér að ég (sem er sá eini sem er að kenna BJJ í Faxafeni, og á Íslandi, held ég) er ekki með neitt belti í BJJ. Ég myndi því flokkast sem hvítt belti. Ég veit bara um 2 íslenska stráka sem hafa náð fyrsta beltinu í BJJ (það er bláa beltið) og þeir fengu það eftir mikla þjálfun í útlöndum. Annar þeirra æfir stundum með okkur og hinn er hættur að æfa. Athugaðu að það er verið að kenna einhversskonar submission grappling eða MMA (Mixed Martial Arts (= “freefight”))...

Re: Hvernig gekk spáin?

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ekki bara vinna bardagann, heldur vinna hann 20 sekúndum síðar!

Re: K-1 á sýn

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Verða einhverjir MMA bardagar sýndir á Sýn, þetta kvöld eða önnur kvöld?

Re: Tæknilegri TKD :)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Kunningi kunningja kunningja míns, eða þannig, var víst þekktur fyrir að handleggsbrjóta andstæðinga sína með sérlega hörðum magavöðvum sínum er þeir reyndu fyrir sér í “kumite” með honum í Karatefélaginu Þórshamar. Ég hugsaði mikið um þetta og komst loks að raun um það að hann gæti hugsanlega hafa verið að ljúga.

Re: Muay thai og kick box mót í valsheimili

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Þetta var skemmtilegt kvöld og allir stóðu sig frábærlega. Þá á ég við bæði Kári og Hannes, íslensku kickboxerarnir og erlendu kickboxerarnir. Það hefði verið gaman að sjá fleiri meira grappling frá Kára og fleiri takedown tilraunir, enda er hann mjög góður í gólfglímu, en hann sýndi samt prýðisgóða box tækni sem ég vissi ekki að hann ætti til. Bardaginn fór í raun og veru bara einu sinni í gólfið og Hannes náði að standa upp eftir omo plata tilraun Kára. Hannes hafði samt betur í standup...

Re: NM í júdó

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Hljómar svolítið eins og að íslenskir júdóþjálfarar séu ekki að standa sig eða að það vanti einfaldlega fleiri í júdó.

Re: TILBOÐ

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ég, sem er að kenna BJJ (eða “submission grappling” ef þið viljið frekar kalla það það) í Faxafeni 8, hef einmitt verið að spá svolítið í það að mæta eitthvað til Skúla í box á næstunni, án þess þó að minnka neitt við mig í BJJ. Ég fékk smá box kennslu hjá Skúla fyrir nokkrum vikum síðan og leist mjög vel á.

Re: Hræsni aldarinnar!

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
K1 byrjaði sem kickbox en núna eru þeir með MMA (Mixed Martial Arts) bardaga líka, mjög svipað því sem þið hafið kannski séð í keppnum eins og UFC (Ultimate Fighting Championship) og Pride. Í MMA keppnum er allt leyfilegt sem er leyfileg í kickboxi (minnir mig) PLÚS það að bardagar geta haldið áfram á gólfinu, þar sem þeir enda oft í handleggslásum eða kyrkingum. Með öðrum orðum mætti segja að MMA (sem reyndar áður var kallað “No holds barred” eða “Vale Tudo”) sé bardagi á milli tveggja...

Re: Ein bardagalist betri en önnur?

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Þetta er alveg rétt. Athugaðu bara að allar bardagalistir hafa kosti og galla. Ég er reyndar sammála Khan um að Júdó og Muay Thai séu rosalega góðar bardagalistir. Ætli ég myndi ekki sjálfur mæla með að þú prufaðir Brazilian Jiu Jitsu (að sjálfsögðu, þar sem ég stunda það sjálfur í Faxafeni 8) og hnefaleika (vegna þess að það eru margir á þeirri skoðun að maður með góðar “hendur” sé oft yfirburða maður í bardaga). Prufaðu bara allt sem vekur áhuga þinn, maður!

Re: mma.is kynnir....

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Frábært! Ég get ekki beðið! :)

Re: Sambo rússnesk glíma.

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Sem stendur erum við að æfa í boxhringnum og merkilegt nokk þá er hann nógu stór fyrir um 10-12 manns. Núna eru svo margir í prófum að við erum aðeins færri að æfa sem stendur. Um leið og við verðum fjölmennari en ca. 12, þá munum við geta sett dýnur fyrir FRAMAN boxhringinn og æft þar.

Re: Sambo rússnesk glíma.

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ég skildi auglýsinguna þannig að það ætti EKKI að kenna þetta á Íslandi. Þetta var bara kynning á bardagalistinni en svo engin kennsla. Skrýtið, en þannig held ég að þetta sé.

Re: Á döfinni á næstu BJJ æfingum

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Já, það er mjög mikilvægt að borða mikið af kartöfluflögum. Annars gæti fólk haldið að bardagalistageta manns væri styrknum manns eingöngu að þakka. Það er líka svakalega niðurlægjandi að vera gjörsigraður af krónískri kartöfluflöguætu. Svona án gríns, þá er sjálfsagt að koma að horfa á. Ekki málið. Kveðja, Jón Gunnar.

Re: Á döfinni á næstu BJJ æfingum

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
…og í gær var þessarri spurningu svarað á æfingu: - Hvernig get ég minnkað TIL MUNA líkurnar (nánast því útiloka þær) á því að vera settur í lása þegar andstæðingur minn er ofan á mér? Svar: Ein MJÖG góð leið er að læra undirstöðuatriðin í “half guard” stöðunni. Half guard er sú staða þegar þú ert undir andstæðingnum en hefur vafið löppunum þínum utan um annað lærið hans/hennar og crosslagt ökklana þína. Munurinn á því að hafa “veitt” aðra löpp andstæðingsins svona og að hafa EKKI gert það...

Re: Á döfinni á næstu BJJ æfingum

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Til að útskýra aðeins betur þetta með vogaraflið og kimura lásinn, þá er “verri” leiðin þannig að maður notar hliðar-magavöðvana en “betri” leiðin þannig að maður notar bakvöðvana, sem eru náttúrulega miklu sterkari. Til að fá jafnvel ENN meiri vogarafl í lásinn, þá er best að hafa báða þumalputtana OFAN á úlnliðum andstæðingsins.

Re: Á döfinni á næstu BJJ æfingum

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Fyrir áhugasama, þá voru eftirfarandi spurningum svarað í seinasta tíma: - Hvernig er hægt að plata mann til að falla fyrir “keylock frá side mount”, ef hann veit að maður vill ná þessu bragði á hann OG hann er góður að sleppa úr side mount í þokkabót? Svar: Ein mjög góð leið er að leggja framhandlegg manns þvert yfir háls andstæðingsins og pressa hægt niður, til að fá fjær hendina til að ýta hausnum manns upp. Það er mikilvægt að hafa þyngdarpunktinn neðarlega þegar maður gerir þetta, svo...

Re: Scientific Fighting 8er eitthva<eth> bogi<eth> vi<eth> <thorn>a<eth>)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Góður póstur og vel skrifað!

Re: Á döfinni á næstu BJJ æfingum

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Kíktu á svarið sem ég gaf cent fyrir ofan. Kveðja, Jón Gunnar.

Re: Á döfinni á næstu BJJ æfingum

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Já - og þetta kostar 2900 kr á mánuði, 8000 kr fyrir þrjá mánuði. Ég held að þetta sé með því allra ódýrasta sem gengur og gerist í bardagalistum og íþróttum hérlendis. Fyrstu 2 tímarnir eru ókeypis, svo að fólk getur komið og prufað þetta og ákveðið hvort að Brazilian Jiu Jitsu sé eitthvað sem henti þeim.

Re: Á döfinni á næstu BJJ æfingum

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Þetta er í Faxafeni 8, í hnefaleikasalnum (ekki í Aikido salnum sem stendur). Gengið er inn bakdyramegin. Við æfum klukkan 21:30 á þriðjudögum og fimmtudögum. Reyndar verður næsta fimmtudagsæfing klukkan 22:00. Hugsanlegt er að við getum fært tímana aðeins og haft þá klukkan 21:00 en það er ennþá í vinnslu. Við æfum í venjulegum íþróttafötum og erum berfættir. Best er að vera í langermabol og stuttbuxum en fólk getur þó haft þetta eins og það vill og mætt t.d. í Karate galla. Bara að það sé...

Re: Á döfinni á næstu BJJ æfingum

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Þakka þér fyrir þessi orð, Ingþór! Ég kann vel að meta þau. Það væri ekki verra að fá jafn reyndan submission mann og þig á æfingar til okkar. Þú ert alltaf velkominn. Við stefnum að því að hafa bæði eina helgaræfingu á næstunni og einnig að halda annað “UFC partí” (þar sem við kíkjum á MMA/submission grappling spólur/mpeg, sötrum kók og gleypum kartöfluflögur). Jón Gunnar.

Re: Fyrsta dan gráðun í aikido á Íslandi

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Frábært hjá ykkur!!

Re: Sambo rússnesk glíma.

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Þessi tilkynning kom allt of seint. Ég hefði mætt en ég sá þetta í DV eða Mogganum, minnir mig, og þá var þetta búið. Ég skildi þetta hins vegar þannig að þetta væri bara kynning á Sambo en að það stæði ekki til að kenna þetta hérlendis.

Re: Til hamingju quesus!

í Bardagaíþróttir fyrir 22 árum
Já það tekur oft fólk 2-3 ár að fara frá bláu belti yfir í fjólublátt, og það með stífri þjálfun. En ímyndaðu þér hvað þú verður orðinn mikið betri þá. Ég myndi segja að biðin (og þjálfunin) væri vel þess virði.

Re: Til hamingju quesus!

í Bardagaíþróttir fyrir 22 árum
Heyr, heyr! Hann á svo sannarlega allt þetta hrós skilið og meira til! “Pílagrímur” er gott orð í þessu samhengi því að drengurinn hefur lagt svakalega mikið á sig til að ná þessum merka árangri. Hann er kvatning fyrir aðra til að feta í fótspor sín. Ég vona að þetta verði til þess að fleiri ískallar og ískellingar af klakanum næli sér í BJJ belti í náinni framtíð. Ég hef heyrt að blá belti frá Chris Brennan gangi mjög vel í öllum submission grappling keppnum og að hann sé ekki að gefa...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok