Jæja hvernig gekk fólki að spá fyrir Pride og UFC? Pride spáin mín gekk eiginlega alveg eftir, en ég hef sjaldan beðið jafn mikilli útreið í UFC o_O

Það voru 2 bardagar sem ég var svo gott sem 100% á, ég hafði ekki mikið álit á Frank Mir og Matt Serra, og bjóst við að þeir myndu tapa, ég var næstum búinn að veðja á þá tvo í parley veðmáli en hætti við. Svo tapa þeir báðir svona líka, svo var ég svona 80% á því að Kimo væri mun betri en Shamrock, taldi að Shamrock hefði aldrei verið góður og Kimo myndi rústa honum, en já, það gekk heldur ekki eftir. Spáði líka Charuto sigri yfir Hughes (sem reyndar var ekkert fjarri því að gerast), eina sem gekk eftir hjá mér var að Tanner sigraði Baroni.

Hvernig fór þetta eftir hjá öðrum? Vona að ég sé ekki sá eini sem gekk skelfilega þetta skiptið.