Fyrir þá sem æfa BJJ með mér, og þá sem eru að pæla í að skella sér í ókeypis prufutíma, þá langaði mér til að segja ykkur frá sumu af því sem við munum taka fyrir á næstu æfingum.

Eftirfarandi spurningum og mörgu fleira verður svarað:

- Hvernig er hægt að plata mann til að falla fyrir “keylock frá side mount”, ef hann veit að maður vill ná þessu bragði á hann OG hann er góður að sleppa úr side mount í þokkabót?

- Hvaða brögð frá “side mount” virka hvað oftast í grappling keppnum?

- Hvaðan kemur aðal vogaraflið sem þarf til að klára “kimura” lásinn?

- Er hægt að gera eitthvað sem virkar mjög vel þegar andstæðingur minn stígur yfir mig þegar ég hef hann í “omo plata” lás?

- Hvernig get ég minnkað TIL MUNA líkurnar (nánast því útiloka þær) á því að vera settur í lása þegar andstæðingur minn er ofan á mér?

- Er mikið hægt að gera þegar maður reynir að kyrkja andstæðinginn frá “back mount” (þ.e.a.s. maður er fyrir aftan hann) og hann togar höndina manns niður?

- Hvernig get ég orðið betri í því að sleppa frá “mount” stöðunni (andstæðingur ofan á manni með hnéin sín sitt hvoru megin við mann)?

- Hvaða grip get ég notað þegar andstæðingur minn hefur ekki Júdó- eða Karategalla sem ég get gripið í?

- Ég reyni að toga andstæðinginn niður til að klára “triangle choke” en hann togar svo fast til baka? Er ég ekki nógu sterkur eða get ég gert eitthvað í þessarri stöðu?

- Hvað get ég gert þegar ég reyni að fella andstæðing minn í gólfið með því að grípa með báðum höndum utan um löppina á honum en hann leggst bara ofan á mig, hálf-kremur mig undir sér og spyrnir löppinni afturábak í burtu frá mér?

…svo eru náttúrulega fleiri UFC partí á döfinni. Að sjálfsögðu.

Kveðja,

Jón Gunna