Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

jgt
jgt Notandi frá fornöld 104 stig

Re: Hvað ert ÞÚ að æfa?

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Hey! Þá er ég að kenna þér! Hver ertu, annars? :)

Re: HEY!

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Þér finnst þetta eflaust mjög táknrænt en ég skal segja þér það að heiminum er örugglega nákvæmlega sama um skoðanir þínar. Hann veit nefnilega ekki af þeim.

Re: HEY!

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég er alveg hel-massaður og flottur og ég skal byrja með þér með þeim skilyrðum að þú lítir ekki út eins og þú gerir á myndinni þinni (eins og rotnandi lík á hvolfi) og að þú hafir gaman af koddaslag. Þetta seinna er eiginlega mun mikilvægara. Takk fyrir mig, Þrúðmar.

Re: Vopn

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Alveg sammála þér. Þetta var mjög góður póstur - sérstaklega önnur málsgreinin. Kv. Jón Gunnar.

Re: Hvað ert ÞÚ að æfa?

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég er að æfa og kenna brasilískt Jiu Jitsu (sem er ekki það sama og það japanska sem hinir eru að tala um) í World Class.

Re: Spurning!

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég næ samt ekki hverju þú ert ekki sammála ;)

Re: Spurning!

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Þessi bardagalist/íþrótt kallast MMA (Mixed Martial Arts). Hún er sambland af brasilísku Jiu Jitsu, Wrestling (ekki þetta sem er feik), boxi og sparkboxi (yfirleitt Muay Thai). MMA er alltaf að þróast. Hún byrjaði ca. 1993 og var sennilega ögn “blóðugri” til að byrja með. Núna er búið að bæta inn fullt af reglum, þar sem áður fyrr voru einungis tvær reglur: Bannað að bíta og pota í augu (til að menn færu ekki heim alvarlega slasaðir fyrir lífstíð). Tékkaðu á þræðinum “Hverjir/hvaða félög eru...

Re: Er ekkert að gerast í þessu boxi?

í Box fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Nákvæmlega. Celebrity Deathmatch.

Re: Hvaða list?

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
LOL. Nákvæmlega það sem ég var að hugsa, Einar. En líklegast er að hann hafi bara ekki kunnað neitt (nema kannski að glápa svolítið mikið á Matrix).

Re: Er ekkert að gerast í þessu boxi?

í Box fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Aldrei - ALDREI segja aftur neitt ljótt um sænskt jógúrt! Annars væri kannski hægt að plata eitthvað íslenskt “celebrity” í box? T.d. Jónsa í Svörtum Fötum? Kveðja, Þrúðmar.

Re: Takið þátt!

í Box fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég hef nú reyndar heyrt það milljón sinnum frá fullt af fólki (sem veit hvað það er að tala um) að hnefaleikar eru sennilega á topp 5 listanum yfir bestu sjálfsvarnar listir/íþróttir sem til eru. Sjálfur myndi ég setja box í sæti númer 2 eða 1. Það hefur til dæmis gerst oft og mörgum sinnum að karate menn hafa prufað að sparra við boxara og boxararnir nær ALLTAF unnið. Það eru engir bardagalistamenn með betri kýlingar, handatækni og fótaburð en boxarar. Engir. Ef ég hefði ekki svona mikið á...

Re: Reynir laminn

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Mjög heimskulegur þráður hjá þér! Ef að þú ert að tala um það sem ég held að þú sért að tala um, þá var Reynir einhverntíma að keppa í Vale Tudo, ekki “valle tutto”, í Danmörku. Mér skilst að hann hafi unnið einhverja bardaga og tapað einhverjum, eins og kemur fyrir nær alla. Mér skilst einnig að hann hafi staðið sig mjög vel og að hvorki hann né aðrir í þessarri keppni hafið verið neitt sérstaklega “lamdir”, því þetta er íþrótt, þó að þú sjáir það kannski ekki vegna þess að þú hefur ekki...

Re: Hverjir geta brotið spítu? (eða múrstein?)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
MÚRSTEINAR SÖKKA! Annars leitt að heyra þetta með pabba þinn.

Re: Brazilian Jiu Jitsu að byrja í World Class!

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Fyrsti tíminn var mjög skemmtilegur. Góðvinur minn sem er úr sveit og vanur að telja rollur taldi 28 manns sem mættu, fólk af öllum stærðum og gerðum. 28 manns eru að læra BJJ. Ert þú ein(n) af þeim? Muhahahahaha. ;)

Re: Brazilian Jiu Jitsu að byrja í World Class!

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ok fyrsti tíminn byrjar í kvöld klukkan 20:30! Sjáumst sem flest! Ef þið missið af fyrstu nokkrum tímunum þá gerir það ekki mikið til. Endilega að kýla á það og prufa eitthvað alveg nýtt! Kveðja, Jón Gunnar.

Re: Hverjir geta brotið spítu? (eða múrstein?)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég er búinn að vera að æfa mig að brjóta spýtur í svona tíu ár og get loksins sagt að ef að spýta eða jafnvel spýt-ur myndu ráðast á mig á götunni, þá væru þær í VONDUM málum. Vondum málum. Kv. Þrúðmar.

Re: Brazilian Jiu Jitsu að byrja í World Class!

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Fyrst um sinn… sennilega ekki.

Re: Brazilian Jiu Jitsu að byrja í World Class

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Já, BJJ er bara kennt af okkur hérlendis. Kíkið endilega í prufutíma! Kveðja, Jón Gunnar.

Re: Brazilian Jiu Jitsu að byrja í World Class!!

í Box fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Það þarf ekki mikið til að fá þig til að hætta við hluti eða gefa þeim ekki tækifæri. Það er og verður fullt af “venjulegu” fólki í World Class, ásamt flórunni af spandexfólki, gömlu fólki, stelpum og strákum, konum og körlum, ungum sem öldnum. Málið er að þetta er einstakt tækifæri til að auglýsa brasilískt Jiu Jitsu því það er svo mikil traffík af fólki þarna. Það kemur svo í ljós hvernig framhaldið verður. Kveðja, Jón Gunnar.

Re: Hvaða bardaga íþrótt er hættulegust

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Svarið er einfalt: Koddaslagur. Við erum að kenna koddaslag í Faxafeni 8. Komdu ef þú þorir.

Re: Viðurnefni

í Box fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Mér finnst “Iron” Mike Tyson nokkuð viðeigandi. Alla vegna á árum áður.

Re: Er box fyrir stelpur

í Box fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég myndi mæla með því að þú færir í prufutíma í HR (Hnefaleikafélag Reykjavíkur), í Faxafeni 8. Þjálfarinn þar heitir Fabio og kennir mjög góða box-tækni. Einnig er hann fínn gaur og næstum jafn myndarlegur og ég. Kveðja, Þrúðmar.

Re: scifi.vortex.is

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Er komið eitthvað nýtt inn á síðuna? Kveðja, Jón Gunnar.

Re: Tricks?

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Tímarnir í Brazilian Jiu Jitsu eru klukkan 21:10 á mánudögum og miðvikudögum, klukkan 19:20 á fimmtudögum og klukkan 13:30 á laugardögum. Svo erum við með “opna tíma” á sunnudögum klukkan 17:00. Fólki er algjörlega frjálst að mæta þegar því hentar. Sumir geta kannski bara æft tvisvar til þrisvar í viku. Fyrstu fjórir tímarnir eru ókeypis. Þannig getur fólk séð nóg af BJJ til að komast að því hvort því líki þetta eða ekki. Brazilian Jiu Jitsu (BJJ) og World Jiu Jitsu er verið að kenna í sama...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok