Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

jgt
jgt Notandi frá fornöld 104 stig

Re: smá hefðbundna bardagalist pæling

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Það er til frægt “saying” í Karate: “One strike, one kill”. Þaðan hef ég þetta. Það, plús það að í Kumite, þá er bardaginn alltaf stoppaður af dómara eftir að högg connectar, og þar af leiðandi er erfitt að ná inn einhverjum fléttum, eins og boxarar eru mun betri í.

Re: smá hefðbundna bardagalist pæling

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ef að TKD, Karate og Kung Fu væru æfð þannig að í keppnum mætti kýla og sparka með fullum krafti, eins og í boxi, Muay Thai og MMA, þá myndu þessar bardagalistir hægt og bítandi þróast í áttina að MMA. Menn myndu t.d komast að því að þú færð færri högg í hausinn ef þú er með hendurnar nálægt hausnum (í staðin fyrir að vera með þær nálægt mjöðm). Menn myndu komast að því að hreyfanleiki skiptir meira máli en solid “horse stance”. Menn myndu komast að því að það er ótrúlega erfitt að rota...

Re: Mad man

í Box fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Í þvotti.

Re: Viltu geta lyft eins og górilla?

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
“BAHHHDAMMA, Ú Ú, BAHHHDAMA” Fann þig, SkuggaPetur! :)

Re: Mad man

í Box fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Algört bull. Ef þyngdarmunurinn er rosalega mikill þá er mjög líklegt að sá stærri vinni, sama hvað, en meira að segja í því tilfelli hefur “reiði” ekkert að gera með þetta. Árásargirni getur stundum hjálpað, en það þarf heilmikið til að bakka það upp, t.d. úthald, tækni, snerpa og kraftur. Þú talar um eins og að ef að einhver ráðist á mann, sé besta lausnin bara að “snappa”? Algjört bull.

Re: Breyting

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Tékkaðu á þessu: http://www.mjolnir.is/QandA.html http://www.mjolnir.is

Re: Æfingabúðir hjá Mjölni 17. og 18. des

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þetta er líka fullkomið tækifæri fyrir fólk að kynnast því sem Mjölnir hefur upp á að bjóða, hvernig kennslan er, aðstaðan, þjálfarar, nemendur, og fleira.

Re: Æfingabúðir hjá Mjölni 17. og 18. des

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Við í Mjölni biðjumst velvirðingar á smá mistökum varðandi æfingarbúðirnar næstu helgi: Þetta kostar ekki 3500kr heldur 2500kr. Sjáumst sem flest! Það eru allir velkomnir. Jón Gunnar.

Re: tae kwon do er betra en box

í Box fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þessi drengur póstaði sama tröll-þræði á hugi.is/bardagalistir. Hann er bara að reyna að fá athygli og hlæja að fólki.

Re: Geta boxarar keppt í MMA?

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þið verðið líka aðeins að spá í HVERS vegna strikerum fór skyndilega að ganga betur í MMA. Svarið er tvíþætt. Annars vegar fóru þeir allir að æfa BJJ, wrestling og aðrar tegundir af gólfglímu. Hitt var það að reglunum var breytt, stikerum (og þar af leiðandi flestum áhorfendum, sem vita ekkert um grappling) í hag. T.d. fengu þeir að vera með hanska (svo þeir brjóti ekki hendurnar), lotur voru innleiddar og þar að auki lætur dómarinn bardagamennina standa upp ef honum finnst ekki vera nógu...

Re: Geta boxarar keppt í MMA?

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
MIKIÐ til í þessu.

Re: www.mma.is

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Hmmm, ég skil ekki alveg. Og á hvaða email addressu sendurðu þetta?

Re: Mjölnir og mma

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Stutta svarið er: Stundum og stundum ekki - en yfirleitt ekki :) Við gerum endalaust margar mismunandi æfingar og leiki þar sem maður má hitt en ekki þetta og síðan þetta en ekki hitt. Þetta er ekkert mál. Þú verður ekkert farið illa með þig hjá okkur, lol :) Mottó dagsins: Ef þú meikar ekki Mjölni, þá meikar Mjölnir þig. Hmmm, … kannski ekki gott mottó - veit nú ekki hver ætti að “meika” nýliða, fyrir utan Árna, kannski, því hann ku hafa lært sitthvað um eyeliner og maskara úr sjónvarpinu...

Re: www.mma.is

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég og Bjarni vorum að kenna BJJ í Hnefaleikafélagi Reykjavíkur og síðan í World Class og síðan í Þórshamri og loks… í Mjölni í Ármúlanum. Núna erum við eingöngu í Mjölni - það er ekkert BJJ eða MMA lengur í World Class. Við ákváðum að það væri besti kosturinn að hafa þetta allt á einum stað og það var frábær ákvörðun því að við höfum aldrei verið í sterkari stöðu en einmitt núna. Við vorum fyrst með heimasíðuna mma.is, svo sbg.is og núna www.mjolnir.is. Kv. Jón Gunnar.

Re: Tristan?

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ok, ég skal hætta að grínast. Ég hef einu sinni talað við Tristan. Ég hitti hann á Muay Thai keppinni í Valsheimilinu, þar sem Árni og co. kepptu í. Einhver benti mér á Tristan og ég hafði heyrt að hann hafði æft hjá Rickson. Hann stóð þarna einn og var að horfa á bardagana. Ég gekk upp að honum, kynnti mig og spurði hann út í BJJ og Rickson. Hann sagði mér að hann hafi verið að æfa hjá Rickson og mig minnir að hann hafi sagt að hann hafi fengið blátt belti frá honum. Blábeltisstandardinn er...

Re: Könnunin.

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
LOL :)

Re: Tristan?

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég heyrði að hann hafi einu sinn barið heilt gengi með berum höndum. Án gríns, það var einhver strákur sem sagði mér frá þessu - ég man þó ekki hver hann var. Tristan átti það líka til að vinna götubardaga með augnaráðinu einu, þ.e.a.s. hann gat starið svo stíft, djúpt og intense í augun á þér að þú hreinlega fraust. Ég er kannski að vera svolítið djarfur, en ég leyfi mér að segja það að ég held að Tristan sé betri bardagalistamaður en Bruce Lee! En við heppin að hafa hann á Íslandi! Bestu...

Re: Könnunin.

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég kaus að SJÁLFSÖGÐU Árna Ísaks :)

Re: [b] Ninjutsu á Íslandi???[/b]

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
LOL. Kominn úr útlægð. Nei, án gríns, þá er aldrei að vita nema að þetta verði bara þrusu skemmtun. Gott mál.

Re: [b] Ninjutsu á Íslandi???[/b]

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Frábært! Ég styð þetta framtak hjá þér heils hugar. Ég er að kenna Kodda-slag (því miður miskilin bardagaíþrótt) fyrir konur á öllum aldri í Vesturbænum og við erum með fína aðstöðu fyrir ykkur ef þið væruð til í að deila húsnæði með okkur. Þá gætu líka eitthvað af mínum nemendum kíkt á æfingar hjá ykkur og öfugt. Smá speki úr mínum geira: Þú ert aðeins eins hörð og koddinn þinn er.

Re: Mjölnir í DV í dag

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
EINHVERN VANTAR KNÚÚÚÚS!!!! Í alvörunni talað þá held ég að það sem ykkur fyrst og fremst vantar er svona staður sem þið getið komið saman á og grátið á öxl hvors annars. :)

Re: Mynd af Matt Thornton

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Hmm, hugi.is hlýtur að vera eitthvað veikur í dag. Ég var nefnilega að reyna að teikna betri mynd af Matt Thornton. En ég fann reyndar eina á netinu: http://img.photobucket.com/albums/v699/sjokotov/finger.jpg

Re: Mynd af Matt Thornton

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
_ | | | | _| |_ /| | | |-. | | | | | | | | \_ _/

Re: Pumping Iron VS Mjölnir

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég er sammála goorka um að þú eigir ekki að láta fólk á netinu segja þér hvað þú eigir að gera - prufaðu það sem þú heldur að komi til greina og veldu. Þú finnur það best sjálf. Varúð - sannleikurinn á það til að birtast í gólfglímu, hvort sem hann heitir armbar eða Illuminati ;) Já, ég hef lesið eitthvað af greinum þínum á huga. Þú ert að leita að einhverju, hvort sem þú veist það eða ekki. Punktur, basta. Kannski að þú finnir það í brasilísku Jú Jitú. Persónulega held ég að þú eigir eftir...

Re: UFC

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Pointið er að það stendur enginn kyrr í bardaga ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok