Hvort gymið er betra og hverjir eru bestu fæterarnir?

Ég er að spá í að byrja æfa eitthvað og samkvæmt því sem ég hef lesið eru þetta einu staðirnir með viti á landinu…hef engann áhuga á einhverji karate drasli þar sem ég þarf að kalla kennarann “herra” og hneygja mig fyrir honum eins og ég sé skítur undir skónum á honum. Hef áhuga á þessum stöðum því þetta er svona nútímalegra og betra (hef fylgst aðeins með UFC og Pride og veit því hvað virkar og hvað virkar ekki).