Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

jgt
jgt Notandi frá fornöld 104 stig

Re: Joe Rogan

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Eins og þú veist þá stjórnar Steven Seagal í raun og veru UFC innan frá, þótt margir hafi ekki hugmynd um það. Eftir að Joe Rogan tottaði Steven fyrir fáeinum árum síðan, sneri Steven sér að Joe og sagði: “You are allright with me, mr. Reagan.” og þannig fékk Joe jobbið. Ég segi nú bara að Steven var heppinn að Joe setti hann ekki í dicklock. En það var áður en Joe varð svona góður í lásum.

Re: Jiu Jitsu - Áhugasamur.

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Sendu mér email, ok?

Re: Jiu Jitsu - Áhugasamur.

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Átti þetta ekki að vera “Mjölnismönnum” en ekki “fjölnismönnum”? En annars, takk fyrir hlý orð! :)

Re: Jiu Jitsu - Áhugasamur.

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Hey, Bjarni, ætli að Matt Thornton (btw. sem er svartbeltingur í BJJ) væri til í smá skrepp til Egilsstaða þegar hann kemur til okkar næst? ;)

Re: Jiu Jitsu - Áhugasamur.

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Hey, ég man ekki til þess að hafa komið til Egilsstaða! Ég væri nú alveg til í að nota tækifærið og kíkja á ykkur. Bara svo þú vitir af því, þá erum við í Mjölni með einskonar óformlegt “útibú” á Bifröst, þó þeir séu nú eins sjálfstæðir og hugsast getur. En það er mikill vinskapur, samskipti og hjálpsemi sem á sér stað á milli okkar. Þau eru nú ekki mörg sem æfa þar en þau eru áhugasöm, kennslan er góð og framtíðin björt. Þannig að ég held bókað að svona lagað sé hægt í minni bæjum en...

Re: Jiu Jitsu - Áhugasamur.

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ég byrjaði að fikta í þessu með bróður mínum á stofugólfinu heima. Síðan auglýsti ég hér á huga eftir áhugasömu fólki og æfði með um 4-8 manns í einhvern tíma. Þetta hefur vaxið og vaxið eins og snjóbolti og í gær mættu 53 manns á æfingu hjá Mjölni! Húsið var PAKKAÐ, tónlistin í botni og svitinn lak af fólkinu. Sendu mér tölvupóst og ég skal reyna að senda þér smá upplýsingar um hvernig byrjendatími gæti verið. Emailið mitt er j_g_thorarinsson@hotmail.com

Re: Jiu Jitsu - Áhugasamur.

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ja engar átti ég beljurnar og varð því að auglýsa eftir tvífættum spriklurum til að taka þátt í þessu með mér. Nei, án gríns, - já, ég auglýsti eftir fólki sem væri til í að fikta í þessu með mér. Fiktið heitir Mjölnir í dag. Kíktu bara einhverntíman í stórborgina Reykjavík og heilsaðu upp á okkur. Kanntu ekki www.hugi.is leynimerkið? Þannig gæti ég hugsanlega þekkt þig, skilurðu. ;) Gangi þér vel með þetta. Ef þú hefur einhverjar spurningar, sendu mér þá bara póst eða bjallaðu í mig. Þú...

Re: It´s official!!! Matt Hughes vs Royce Gracie!!!

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Royce Gracie, flying armbar, 0:46, fyrsta lota. Ég sé ekki að bardaginn geti endað öðruvísi.

Re: Jiu Jitsu - Áhugasamur.

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Þannig byrjaði BJJ á Íslandi. Ég fór að fá áhuga á þessu dóti og byrjaði fyrst að fikta út frá vídeóspólum. Endaði svo með að verða meðlimur “Straight Blast Gym” (www.straightblastgym.com) sem er þekkt erlend BJJ félag, til að gera mjög langa sögu mjög stutta. Svipuð byrjun og hjá þér, nema að ég er ekki úr sveit og hafði meiri áhuga á Transformers en Turtles.

Re: Grandmaster Steven Seagal

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ég heyrði að Stebbi Sjávarbíbí hafi reyndar barist fyrir því að fá titilskot í UFC en þeir hafi bannað hann vegna þess að hann var alltaf að reyna að ná “the dicklock” og öðrum “small joint manipulations”. Sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Re: Openmat

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Kári æfir með SBG Denmark. Hann kennir eitthvað en er þó ekki aðalkennarinn. Satt best að segja veit ég ekki nákvæmlega hversu mikið hann kennir en hann hefur kennt á alla vegna tveimur Mjölnisæfingum (þegar hann kom í heimsókn til Íslands) og gerði það mjög vel. Hann er líka drengur góður og mjög fær og tæknilegur grappler, með bláa beltið í brasilísku Jiu Jitsu (eins og ég, Bjarni og Arnar frá Mjölni). Ég hef tvisvar hitt og æft með Reyni og hann var líka bæði fínn og góður grappler....

Re: Hundsa ruglið?

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Kúl :)

Re: Hundsa ruglið?

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Það á bara að banna svona vitleysinga, þ.e.a.s. henda þeim út af spjallrásinni. Ef ég væri moderator myndi ég gera það án hiks. Ég er reyndar moderator á annarri spjallrás og þá eigum við í engum vandræðum með svona fólk vegna þess að við erum harðir við þá.

Re: "BJJ is gay"

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ég veit það :) Og ég sé mikið eftir því, afsakið, hehe. Ætli ég myndi ekki skora á ömmu að mæta á æfingu ef ég sæi að hún reyndi að faðma mig með double underhooks?

Re: "BJJ is gay"

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ég verð nú að viðurkenna að þegar ég er ekki í hörkusparring við einhvern, þá finnst mér nú ekki endilega mjög þægilegt að hanga og spjalla við einhvern sem er á milli lappanna á mér ;) lol. Þegar ég er t.d. að kenna guard brögð og pása eitthvað til að tala í smá tíma, þá á ég það til að renna mér afturábak og setjast upp þannig að sá sem ég er að sýna bragðið á er ekki lengur í guard hjá mér. En þegar sparring er í gangi á fullu, þá endar maður í guard, mount og í ýmsum stöðum sem maður er...

Re: MJÖLNIR (bjj/mma) byrjendatímar að hefjast!!! (video)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Það mættu 34 manns, fyrir utan mig og Bjarna, á æfinguna í gær! Frábær mæting. 34 nýjar drápsvélar. Með hjarta úr gulli, að sjálfsögðu ;) Götuslagsmálahundar eru armbarraðir og geymdir í kústaskápnum okkar.

Re: MJÖLNIR (bjj/mma) byrjendatímar að hefjast!!! (video)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Tékkaðu hér fyrir stundarskrá og verðskrá: http://www.mjolnir.is/stundaskra.html. Kveðja, Jón Gunnar.

Re: MJÖLNIR (bjj/mma) byrjendatímar að hefjast!!! (video)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Við erum ekki með sérstaka unglinga- eða barnatíma ennþá en það stendur til. Ef ég væri þú þá myndi ég bara prufa að mæta til okkar og sjá hvernig þér líst á það að æfa með okkur. Það er fólk hjá okkur af öllum stærðum og gerðum og á öllum aldri. Ég held líka að það séu fáeinir 15 og 16 ára strákar byrjaðir að æfa hjá okkur, þannig að þú finnur örugglega einhverja æfingarfélaga. Svo geturðu líka kannski bara platað einhvern vin með þér? Komdu bara og kíktu á okkur þegar þú vilt. Það verður...

Re: MJÖLNIR (bjj/mma) byrjendatímar að hefjast!!! (video)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Fyrir þá sem vilja mæta í kvöld, þá er mæting klukkan 20:00. Ef þið missið af þessum fyrsta tíma þá er það allt í lagi, komiði bara nokkrum dögum seinna. Byrjendakennsluefnið verður endurtekið aftur og aftur. Fyrir þá sem eru kannski að spá eitthvað í bakgrunni Mjölnis, þá má geta þess að við erum skráð “útibú” fyrir eitt þekktasta BJJ/MMA félag í heiminum, “Straight Blast Gym” (www.straightblastgym.com) og erum með kennsluréttindi frá þeim. Það er líka planið að fá til okkar nokkra erlenda...

Re: MJÖLNIR (bjj/mma) byrjendatímar að hefjast!!! (video)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Fyrsti tíminn er í kvöld! www.mjolnir.is

Re: PrideFC Shockwave 2005

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Góð grein, btw.! Vel skrifað og góðir punktar.

Re: PrideFC Shockwave 2005

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
:) Ég meina ertu kannski nýbyrjaður hjá Mjölni? Ég hef lítið komist á æfingar (að kenna) undanfarið en það fer að breytast. Bjarni hefur að mestu verið að kenna upp á síðkastið. Bara að tékka hvort þú sért einhver sem ég kannast við :) Kv. Jón Gunnar.

Re: PrideFC Shockwave 2005

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Leonheart, hvar æfirðu?

Re: hvar er best að kíla??

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
AIM FOR THE HEAD, GRASSHOPPER! :)

Re: MMA/BJJ

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Athugið samt að fólk með fjólublátt belti með eina rönd hafa leyfi til að veita þrjár rendur á hvít belti. Það þýðir að eftir kannski 1-3 ár getum við kennararnir í Mjölni gefið allt að þrjár rendur á hvítu belti nemanda okkar. Næsta skref fyrir slíka nemendur væri svo að fá bláa beltið frá einhverjum brún- eða svartbeltingi eins og Matt Thornton (hann er með svarta beltið). Kv. Jón Gunnar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok