Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

jettyIS
jettyIS Notandi frá fornöld 110 stig

:c) (0 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Sælt veri fólkið, Ég hef ekki hundsvit á bílum, það eina sem ég veit er hvar mar finnur svissinn og hvað maður setur í svissinn :c) en audda finnst mér gaman að sjá sæta bíla og allt það. Ég ætlaði hinsvegar að spurja ykkur hvort þið kannist við soldið :c) Bróðir kallsins míns er ótrúlegur bílakall, þá sérstaklega á BMW - anyhoo.. þegar ég var einu sinni hjá honum og hann var á netinu ásamt vini sínum og þeir voru að skoða síðu þar sem eigandi síðunnar hafði farið um (nokkuð viss um að hann...

Barnalæknaþjónustan í Domus Medica (5 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum
Ég á litla stelpu sem er núna 6 vikna gömul en alla helgina var hún búin að vera frekar óróleg, sígrátandi hvort sem hún var í fanginu á mér eða ekki, dugði ekkert að láta hana ropa, hún var með smá hita, hún var ósofandi og við hjúin líka. Því ákvað ég í gær (sunnudag) að fara með dömuna á barnalæknaþjónustuna til að ath. hvort þeir gætu ekki hjálpað henni eitthvað svo ég leit í bæklinginn sem ég fékk frá hjúkkunni í ungbarnaeftirlitinu til að sjá hvort það væri opið. Jújú, það stóð að opið...

Kæru mömmur.. (4 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Síðan fljótlega eftir að ég varð ófrísk hef ég verið að leita að flík fyrir litla krílið mitt sem ætlar að koma til mín eftir c.a. mánuð. Sú flík er nærbolur úr ull eða akrýl. Þegar ég var lítil var ég alltaf í svoleiðis bol þegar ég svaf útí vagni eða ef ég fór út með mömmu gömlu. Ef hún sleppti því að klæða mig í þannig flík fékk ég vanalega kvef, ótrúlegt en satt. Því vil ég klæða mitt barn í slíka flík þegar það mun sofa úti. Ég hef leitað að svona flík út um allt, ég fann svona boli í...

Samb. við skoðanakönnun (1 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það vantar upplýs. um hver hefur forræðið - það vegur svo mikið í svarinu.

Spurning til mæðra og verðandi mæðra.. (2 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Kæru stúlkur, Ég er á leið í sumarbústað fyrstu helgina í mars, svona síðustu forvöð til að gera eitthvað áður en maður þarf að fara að leita að barnapíu og þess háttar :c) Jæja allavegna, í þessum sumarbústað er heitur pottur og ég spurði ljósmóðurina auðvitað hvort það væri óhætt að fara í einn slíkan og hún kvað svo vera - ég þyrfti bara að dæma það sjálf hvort mér fyndist það óþægilegt eða ekki í samb. við hitastig vatnsins ofl. því sumum konum finnst það víst óþægilegt að fara í heitan...

Svæði fyrir verðandi og nýbakaða foreldra (1 álit)

í Hugi fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég er tiltölulega nýbyrjuð að fylgjast með umræðum hér á hugi.is og hef skoðað hin ýmsu “svæði” og finnst þetta bara vera hreint frábær staður. Eitt “svæðið” sem ég fíla er “Börnin okkar” því þar er rætt um börnin og fólk jafnvel að biðja um ráð. Það sem vantar hinsvegar og á vel heima hér er “svæði” þar sem verðandi mæður og feður gætu borið saman bækur sínar um meðgöngu og jafnvel spurt hvort annað um hluti tengda meðgöngu. Einnig væri sniðugt að hafa “svæði” þar sem nýbakaðir foreldrar...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok