Síðan fljótlega eftir að ég varð ófrísk hef ég verið að leita að flík fyrir litla krílið mitt sem ætlar að koma til mín eftir c.a. mánuð. Sú flík er nærbolur úr ull eða akrýl. Þegar ég var lítil var ég alltaf í svoleiðis bol þegar ég svaf útí vagni eða ef ég fór út með mömmu gömlu. Ef hún sleppti því að klæða mig í þannig flík fékk ég vanalega kvef, ótrúlegt en satt. Því vil ég klæða mitt barn í slíka flík þegar það mun sofa úti. Ég hef leitað að svona flík út um allt, ég fann svona boli í Kaupfélaginu á Borgarnesi þegar ég var þar um helgina en stykkið af bolnum þar kostaði 560 krónur sem mér fannst ALLTOF dýrt.
Ekki vitið þið í hvaða búð ég get fengið svona flík - jafnvel væri fínt að fá að vita hvort þið vissuð um einhvern sem býr svona flík til?

Bestu kveðjur og þökk,

JettyIS