Sælt veri fólkið,

Ég hef ekki hundsvit á bílum, það eina sem ég veit er hvar mar finnur svissinn og hvað maður setur í svissinn :c) en audda finnst mér gaman að sjá sæta bíla og allt það. Ég ætlaði hinsvegar að spurja ykkur hvort þið kannist við soldið :c) Bróðir kallsins míns er ótrúlegur bílakall, þá sérstaklega á BMW - anyhoo.. þegar ég var einu sinni hjá honum og hann var á netinu ásamt vini sínum og þeir voru að skoða síðu þar sem eigandi síðunnar hafði farið um (nokkuð viss um að hann hafi búið í USA) og tekið ljósmyndir af hinum og þessum bílum sem voru hallærislega breyttir (ekki mikið um límmiðana tho') og dissaði þá í slaufu, ekkert ólíkt “www.riceboypage.com”. Hann var með myndir af t.d. einhverjum pick-up bíl sem var búið að setja barbie logo á og sollis og meira að segja hún litla ég fannstidda fyndið og skemmtileg síða :c) Ég hinsvegar hef ekki hugmynd um urlið. Kannist þið nokkuð við þetta? :c) mig langar svo að sjá 'essa síðu aftur eða einhverja kannski svipaða :c)