Kæru stúlkur,

Ég er á leið í sumarbústað fyrstu helgina í mars, svona síðustu forvöð til að gera eitthvað áður en maður þarf að fara að leita að barnapíu og þess háttar :c)

Jæja allavegna, í þessum sumarbústað er heitur pottur og ég spurði ljósmóðurina auðvitað hvort það væri óhætt að fara í einn slíkan og hún kvað svo vera - ég þyrfti bara að dæma það sjálf hvort mér fyndist það óþægilegt eða ekki í samb. við hitastig vatnsins ofl. því sumum konum finnst það víst óþægilegt að fara í heitan pott þegar þær eru ófrískar.

Þetta var hinsvegar ekki spurningin… spurningin er sú að venjulegi sundbolurinn minn passar mér auðvitað ekki núna :c) svo mig vantar sundbol fyrir ófrískar dömur, ég fór í intersport í gær og hélt kannski að það væri til þar en auðvitað var svo ekki.. það var ekki einusinni til sundbolur í stórri stærð fyrir fólk sem þarf svoleiðis (bara grannt fólk sem verslar við intersport greinilega).

Kæru dömur, hvar finn ég sundföt f. ófrískar konur?

Bestu kveðjur,

JettyIS