Talar vindurinn til þín, hvíslandi blær
glottir sólin, þegar þú hlærð?
Skríður hafið um augun þér, flæðandi sær
hlustar bergið þegar þú ert særð?

Faðma skýin þig að sér, með ást
sýna þér inn í sinn heim?
Leyfir þú sjálfri þér að elska og dást
leyfir þú sjálfri þér að vera ein?