Sæl verið þið.
Ég er að fara af stað með rannsókn um reynslu fólks af varanlegu fósturúrræði og vantar einhvern til að taka þátt. Þetta er lokaverkefni í félagsfræði í HÍ og því undir stjórn félagsfræðings á þessu sviði. Rannsóknin er algert trúnaðarmál og því munu viðmælendur mínir ekki vera nafngreindir í rannsókninni né þeir staðir sem þeir hafa reynslu af.
Ég leita þessara leiðar þar sem mig skortir úrræði til að komast í aðgengi við viðmælendur og ákvað því að varpa þessu til ykkar lesendur góðir á Huga. Endilega verið óhrædd við að senda mér skilaboð ef þið hafir reynslu af því að vera fósturbörn og hafið áhuga á að taka þátt í þessari rannsókn, eða ef þið þekkið einhvern sem hefði áhuga á þessu.

Fyrirfram þökk Jath