Langar að deila með ykkur þessu ljóði, mér finnst það snilld af strák sem hefur sjaldan eða aldrei samið ljóð, en gerði það fyrir mig ;)
Verst að ég get ekki tileinkað mér það lengur…..

Kynni

Orð…. Svart-hvítir deplar augna minna
Þau endurspeglast af skjánum
Innihaldslaus og vanabundin

Rödd…. Ljúfir hljómar raddar þinnar
Fá tíman til að hverfa og góða byrtast
Trúin á traust vex

Fegurð…. Punktar fá líf
Og myndin grefur sig í vitundina
Hjartalagið skín í gegnum þessa fallegu þig

Þú…. Þúsund, þrjátíu, tvær mínútur líða ekki án þess að þú sért viðfangsefni hugsana minna
Heldur mér föngum