Já lift-off understeer er drift framhjóladrifsbílsins, bara gaman. Hef oft staðið mig að því þegar ég ætla að dóla mér eitthvert að koma að hringtorgi á góðu skriði, beygja vel inn á það, slá af þegar hann byrjar að renna að framan, fá grip að framan, botna bílinn, beygja út og standa hann svo í spólinu þversum það sem eftir er af torginu. Ég hef aldrei tekið í 306 en skilst að þeir séu alveg frábærir í svona hringtorgar stúss.