Þetta eru mjög skemmtilegar pælingar sem ég er einmitt að byrja að aðhyllast þótt ég eigi enn nýlegan bíl. Er svona að vonast eftir að vera kominn á 2ja bíla 10-20 ára flota eftir ár. Ég er svona eins og ástandið er í dag meira í þýsku línunni og lít því hornauga til bíla eins og BMW E24 635, E30 M3, E34 (já eða E28) M5, Benz 190 2.5, 560SEC og Porsche 911. Væri alveg til í breskan fák en er ekki alveg að treysta mér í þá viðhaldslega eins og er. Einnig hef ég alltaf verið hrifinn af góðum...