Það er orðið þónokkuð síðan að DVD-upptökutæki komu á markað, en þau hafa verið mjög dýr hingað til. Mig minnir að Pioneer sé að koma með nýjan spilara á markað núna í sumar sem mun kosta í kringum 1500 sterlings pund … kringum 215þús íslenskar. Algengt verð áður var í kringum 400þús og hærra. Í þessu upptökutæki er hægt að taka upp 12 tíma af efni á einn DVD disk, sem verður í kringum 9gig.
Enska dubbið er gert af mörgum þeim leikurum sem léku í myndinni. Semsagt Þjóðverjar að tala ensku, sem gefur dubbinu svolítið raunverulegri blæ. Hins vegar skal það játast að ég fyrirlít þann sem ekki horfir á Das Boot með þýsku tali :)
Staðreyndin er sú að íþróttir munu alltaf ýta Star Trek til hliðar (og öðru sjónvarpsefni). Þ.e.a.s. beinar útsendingar. Önnur staðreynd er sú að RÚV er ekki eina stöðin sem gerir þetta. Ég las um daginn að Voyager var frestað um 2-3 vikur í fyrra í bandaríkjunum vegna þess að ólympíuleikarnir voru á þeim tíma sem 7 sería átti að hefjast. Þannig að það er kannski hart að fordæma RÚV gersamlega vegna þess að einn og einn þáttur frestist vegna íþrótta-atburða. Hinsvegar er það óafsakanlegt að...
Sigurvegari kvöldsins var án efa Eva María þegar hún gaf dönunum 12 stigin sín … algjör snilld!! ;) Annars var ég mjög sáttur við bæði danska lagið og hið eistnenska. Einnig var frábært að rússarnir spörkuðu smá í keppnina með því að breyta aðeins um stíl, og vonandi mun það smita út frá sér á næstu árum. Síðan er spurning um hvort að BT ætti að rukka 2falt fyrir sjónvarpstækin þar sem íslenska lagið var svo andskoti langt frá sæti 1,2 og 3 :)
Allakhazam og Castersrealm úr linkalistanum eru með verð. Síðan er líka til www.eqprices.com og www.eqmaps.com, en þau eru orðinn hluti af einhverju subscription neti, þannig að maður þarf að borga $4 á mánuði til að hafa access. Kv, Thrymill
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..