Das Boot Jæja ég ákvað þó að reyna á það og skrifaði aðra grein um þessa frábæru mynd þó ekki eins langa.— Das Boot fjallar í stuttu máli um þýskan kafbát sem sendur er út á atlandshafið í seinni heimstyrjöldini til að farga skipum bandamanna. Mennirnir um borð eru ólmir í átök en áður en þeir vita af finna átökin þá—. Das Boot er mynd gerð eftir Wolfang Petersen (Air force one), (Perfect storm) og bygð eftir sögu Lothar G. Buchheim “Das Boot”.
Í myndini er sýnt hvernig raunverulega var að vera í kafbáti í seinni heimstyrjöldini og lætur mann finna hryllingin á að vera innilokaður í í svona littlu rími í smá tinn dollu lengst á bóla kafi. Myndin er mun betri U-571 á flesta vegu þó svo að hljóðin í U-571 hafi verið svakalega raunveruleg og flott. Ég keypti mér 200 mínútna útgáfuna sem er Directors’s cut og er hún svakalega góð en þar á móti er hún svakalega löng, samt sem áður mæli ég endregið að þið kíkið á hana (þið sem ekki hafið séð hana) ef þið eigið langt kvöld að höndum en annars bara taka venjulegu útgáfuna á leigu. Ég vil benda á eitt að dubbaða útgáfan af myndini er alls ekki slæm, Kanarnir hafa vandað sig greinilega mikið við að gera þetta flott.