Málið er að í hvert einasta skipti sem Star Trek er frestað myndast þetta þvílíka rifrildi hér á Star Trek áhugamálinu. Ég held að fólk sé almennt þreytt á því að hlusta á þessa eilífu RÚV óánægju, trek í trek, hér inni á StarTrek@Huga. Staðreynd lífsins er sú … ef þáttur er á laugardegi eða sunnudegi á milli 10-18, þá eru mjög góðar líkur á því að lenda á beinum íþrótta-atburð. Það er endalaust hægt að væla út af þessu, en það þjónar engum tilgangi. Ef þessi væluumræða á að halda áfram,...