Af heimasíðu hljómsveitarinnar Evanescence: Co-founders Lee and guitarist/songwriter Ben Moody met while in their early teens. “We were at a youth camp,” Moody recalls. “During some sort of recreational period held in a gymnasium, I heard Amy playing Meat Loaf's ‘I’d Do Anything for Love' at the piano. Úr grein rakel87: Þetta byrjaði allt þegar Amy Lee og Ben Moody hittust í sumarbúðum. Þá voru þau 13 og 14 ára. Amy sat ein úti í horni og spilaði „I'd Do Anything for Love“ með Meat Loaf á...
*,..,*-*,..,*-*,..,*-*,..,* Újeeeeh!! Til hamingju, krúsídúlla ;o) (Er ekki dálítið “stretchað” að kalla svona lengju krúsídúllu? Nevermind…) Smjútsjí!! icelily *************************** http://icelily.blogspot.com
Úff. Ég hef aldrei lent í ástarsorg svo ég er varla í aðstöðu til að gefa þér ráð. En þetta veit ég: Þú ert frábær strákur sem átt allt hið besta skilið. Maður uppsker eins og maður sáir, svo bíddu bara rólegur. Þinn tími mun koma ;) Luv, ice ;***
Já, kvkhamlet, ég er algjör græningi hér á huga. Vonum bara að það sem kemur frá mér í framtíðinni verði efnismeira ;) Kv. icelily P.S. Ef ég ætti að giska……. tíkall?
Hahahahahahahahahahahahaha…….. Ég verð að muna þetta næst þegar ég fer í bíó. Kannski gagnrýnandinn á kvikmyndir.is hafi haft sama motive ;) Kv. icelily
Sammála!! Loksins er komið að því. Ég ætla að slökkva á öllum símum og loka mig af meðan á keppninni stendur. Vona bara að leikmenn borði ekki yfir sig af hundakjöti (gullkorn frá Mal3). Sérstaklega ætla ég að fylgjast með Owen í leik Englands gegn Svíþjóð á sunnudaginn ;) Boltakveðja! icelily
Það fer ekki framhjá neinum að hér er upprennandi stórskáld á ferð. Ég vona að þess verði ekki langt að bíða að við fáum að berja næsta verk augum. Eins og Ragga og PoohGirl sögðu svo réttilega: þú nærð að grípa mann inn í hugarástandið með, að því er virðist, ótrúlega lítilli fyrirhöfn. Í stuttu máli: Hrein snilld!! Kv. icelily ;)
Ég er reyndar enginn góðkunningi Rowling, en mér skilst að hún sé nú þegar búin að skrifa allar bækurnar 7, a.m.k. að mestu leyti. Spurning hvort ekki sé bara verið að teygja á spenningum og láta okkur forfallna aðdáendurna fara oftar á myndina og gefa þeim, sem ekki hafa uppgötvað bækurnar, tækifæri til að kaupa þær fyrri áður en við rífum 5. bókina í okkur. En eins og ég segi… bara hugleiðing. Kv. icelily ;)
Ef marka má biðtímann eftir bókunum í minni fjölskyldu, myndi ég segja að Harry Potter væri með sanni fyrir alla aldurshópa. Bókin er lesin fyrir 4 og 5 ára frændsystkini mín, sem ríghalda í buxnaskálmar foreldra sinna þegar þau ætla að læðast út eftir kvöldlesturinn, ég er 26 ára og gleypi þær í mig, fyrst á ensku svo íslensku, meðan mamma, sem verður 68 ára í júlí, nauðar í mér að klára svo hún geti byrjað. Ég mæli eindregið með því að þú kynnist töfraveröld J.K. Rowling og get ekki annað...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..