Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Undankomuleið; hallarmúrinn (0 álit)

í Ljóð fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Svefnlausar skuggarósir dafna skínandi faðmur þyrna Bergmálar biðilssöngur hrafna blæðandi svipar stirðna

ljóð um blý og leyndarmál (1 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 7 mánuðum
ljóð um blý og leyndarmál hljóðið í blýinu ljúfustu atlot skuggar blýsins leyndarmál lína ósagðra gersema tungunnar orðin geymd í skugganum

ljóð (1 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Ferðalag um fylgsni djúp fagur vangi styllir hóf. Koss af ísilögðum kjúp krystallast í svitans kóf. Spegill sálar rænir hug segulmögnuð sjónarspilin. Hafið heftir lostaflug. Hann svalur stígur þylin.

morgun (2 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Dagur vaknar dulúð svipt Drýpur morgun svitinn Kynjaveröld undan kippt Kæfir þreytu hitinn

stara (2 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 6 mánuðum
ég og aftur ég er þreytt reyni að reyna ekki skoppa eftir hvortöðru snjókorn á gangstéttarhellum

snúsnú (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
þetta er allt og sumt þó að sumt sé ekki þetta þá samt er það. leikum létt veljum rétt í nettum bæ umkringd snjósköbblum með stóra kjafta króknum í hel ..því hún er hvorteðer ekkert svo góð eftir alltsaman.. Vinir? eða bara hinir? og hverjir þá, sem leiðast á laugaveginum.. eða bera bónuspoka fyrir mann?

Blákaldur (alkapolka) (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
(þetta er bara svona smá til að vera memm;)ekkert sem ég er ánægð með en samt) Meira get ég ekki , þó svo að viljinn sé til staðar, en sársaukinn magnast við hverja nautn. Yndislega allt breytist og umhverfið dempast niður í kringum mig þó að ég sé meira svona á snúningi inní “döbbuðum” hugarheimi… og sjái ekki mávana bara hvíta fallega svani synda í eyrðarleysi fuglaheimsins… snúast eftir vindátt og bíða spenntir eftir hverjum sunnudegi.

Mánudagsmorgunn (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Jökulheimar sálarkynna minna gefa frá sér sljóvgandi kulda. Hversdagsleikinn gerir innrás grár fyrir járnum, árás á hamingjuna og étur hana með frystu augnaráði. Meðvitundin hverfur og líf mitt þokast 1 cm á mælihvarða eilífðarinnar. ÉG er umkringdur heilsuleysi líðandi stundar. Gleðivökvi gærdagsins var þá ekki vinur minn eftir allt saman. Gosi murkar úr mér lífið undir fána timpurmannanna. Það er kominn mánudagur.

ætíð kiwi! (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Í gær fór ég í sund. það var geggjað stuð, allir fiskarnir fögnuðu mér, með lúðraþyt og söng, þegar ég hoppaði útí. Þeir hópuðust í kringum mig og heilluðust af appelsínugula síða hárinu mínu sem flæktist um mig alla einsog sjávargróður miðjarðarhafsins umlykur blautu, nöktu steinana.. ..en þetta var aðeins stundar gaman:( hárið mitt appelsínugula sem var,sem var það er ekki lengur:(

"tæj" buxur.. (6 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það eru allmargir sem fest hafa kaup á svokölluðum “tæj”buxum. Ég þarf væntanlega ekki að útskýra frekar hvernig þær eru, en þannig er mál með vexti að buxur þessar verða fljótt litlausar og á endanum einsog gamalt lak..sem er ansi skítt fyrir 5000 kallinn sem þessar buxur kosta!! En! það er hægt að halda þessari “buxna hrörnun” í skefjum með því að setja bolla af (hreinu)borðedik með í þvottinn:) þetta er gamalt og gott húsráð sem heldur lituðum fötum lituðum lengur og efninu ferskara! -Ég...

Kleprun (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum
Vatnið þrýstir nefið á, inní lungun flæðir. Aldrei ég mun þig aftur sjá. Nú allt líf mitt blæðir. Dýpið gleypir þrána löngu. Kalið holdið bíður bana. Bíður svefn í beði þröngu. Til betri heima nú ég ana. Bjartar brautir byrtast nú. Ofbirtu í augun fæ.. valið vefst um sjón og trú. Öllu kastað er á glæ. Svartir gangar um dimma skóga. Ekkert annað val ég hef. lífið, dauðinn, á báða bóga vafðist fyrir mér. Svartir englar nálgast óðum. óttinn hjartað grýpur. Engin huggun hjá mæðrum góðum. DAuðinn...

man ekki meir..... (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 1 mánuði
ég var að pæla hvort einhver ykkar kannist við þetta upphaf…því þetta er þokkalega flott ljóð sem ég átti skrifað einhverstaðar en týndi því í einhverjum flutningunum….það hljóðar svo(held ég): In the bath for a laugh, wetter makes it better. heads under toes over….jæja eða einhvernverginn… það væri frábært að fá restina og kannski rétta byrjun… hel@hugi.is

Grátt í tísku??? (18 álit)

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég var nú bara svona að velta því fyrir mér ….þið munið hvað ALLIR voru alltaf í gráum fötum ,þá sérstaklega buxum. En núna uppá síðkastið hef ég ekki orðið eins vör við grámanneskjur…. Er þetta komið úr tísku? Finnst ykkur tískuspekúlöntum hallærislegt að ganga í gráum kvartbuxum eeeeeða hvað????
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok