Ferðalag um fylgsni djúp
fagur vangi styllir hóf.
Koss af ísilögðum kjúp
krystallast í svitans kóf.

Spegill sálar rænir hug
segulmögnuð sjónarspilin.
Hafið heftir lostaflug.
Hann svalur stígur þylin.