Veit ekki hvort þetta eigi heima í Rómantík..en allavegana..

Það var þannig að ég byrjaði með strák í október 2006..fyrir næstum því ári síðan..hann var og er ennþá yndislegasta manneskja sem ég hef kynnst og hann gerir allt fyrir mig og öfugt..og ég auðvitað alveg féll fyrir honum..og hann fyrir mér..þetta var alveg æðislegur tími í ca 9 mánuði..

En svo gerðist það að kærastinn minn hélt framhjá mér fyrir ca 3-4 mánuðum..og ég var að frétta það fyrir ca 1/2-1 mánuði síðan..
Mér leið auðvitað illa þegar hann sagði mér það..(grét mig í svefn í einhverja daga eftir á og bara allt var í fokki)..en það kom mér einhvernveginn ekki á óvart af því að það var fólk búið að segja mér þetta löngu áður..mig fór svo að gruna það..en vildi ekki trúa því..svo að ég lokaði bara á þessa tilfinningu sem ég fékk þegar fólk sagði mér þetta..

Hann og þessi stelpa sem hann hélt framhjá mér með voru saman..reyndar ekki í svo langan tíma..en hann hatar hana..og ég veit það..hann hataði hana áður og enn meira eftir á..samt skilur hann ekki afhverju hann gerði þetta..hann vissi að hann væri á föstu með stelpu sem hann vissi að elskaði sig (..ég) ..en einhvernveginn þegar hann hitti stelpuna þá mundi hann eftir öllu þegar þau voru saman og svo byrjaði hún að reyna við hann..þannig aaað já..

Allavegana..ég vil alls ekki missa þessa manneskju útúr mínu lífi..þó svo að hann gerði mér þetta..við fórum að tala saman um þetta..um okkur og bara allt..
Hann sagði mér allt um það afhverju hann gerði þetta og hvernig það gerðist..(áður en hann sagði mér frá þessu öllu þá fórum við í pásu..afþví að við vorum eitthvað ósátt..) Mér fannst réttast að við myndum halda áfram að vera í pásu á meðan við myndum vinna úr þessu..af því að, eins og ég sagði áðan, þá vil ég ekki missa hann úr mínu lífi..
Eftir að hafa talað saman í einhvern tíma (þá meina ég daga..) þá föttuðum við það að samband okkar var einhvernveginn ekki sambandið sem við vildum..við vorum meira eins og fuckbuddies..en samt elskuðum við hvort annað..við bara föttuðum það ekki meðan við vorum saman..
Við sögðum hvort öðru hvernig við mættum bæði bæta okkur í sambandinu ef við myndum byrja aftur saman..við sögðum líka hvernig við vildum hafa hlutina og fleira..það höfðum við aldrei gert áður..við vorum eitthvað svo lokuð í akkurat þessu..en ekki lengur..

Ég fyrirgef manneskjum fyrir litla og stóra hluti sem þau hafa gert mér..og vinir mínir vita það vel..en þau skilja samt ekki afhverju ég er að fyrirgefa honum fyrir að hafa gert þetta, afþví þau segja að þetta eigi ekki eftir að ganga og hann eigi bara eftir að halda áfram að særa mig..
En ég veit að hann á ekki eftir að gera það..ég bara finn það..hljómar skrýtið..en samt..
Málið er bara að mér finnst það svo leiðinlegt að þau geta ekki skilið þetta..reyndar hafa þau ekki lent í þessu sjálf..þannig að það gæti verið ein skýringin..
Þau segja öll að ef þetta myndi koma fyrir þau, þá myndu þau hætta strax með stráknum/stelpunni og ekki tala við hann/hana framar..þannig hugsaði ég líka alveg þangað til þetta kom fyrir mig..
Vona bara að þau fari að skilja þetta..þó svo að þeim finnist þetta kannski rangt..

Ég er ekki alveg viss hvort að ég og hann séum saman í augnablikinu..okkur líður báðum þannig og við látum eins og við séum saman..og okkur líður báðum vel þannig og okkur finnst við vera að gera rétt..ég hef meira að segja tekið eftir breytingum hjá honum..og ég met það mjöög mikið..þó svo að þetta voru ekki miklar breytingar þá var þetta allavegana eitthvað..

Margir hugsa þannig að manneskjur sem hætta saman útaf einhverjum ástæðum og byrji aftur saman að þá á það samband ekki eftir að ganga..og manneskjurnar hætta saman aftur útaf nákvæmlega sömu ástæðu og þau hættu saman útaf í fyrra skiptið..ég meira að segja trúi því líka..
En ég trúi því líka að ef að tveim manneskjum virkilega langar til að vera saman..að þá er hægt að bæta sig og laga allt..það er hægt efað viljinn hjá báðum aðilunum er nógu sterkur!

Ég tel mig vita hvað ég er að gera með því að fyrirgefa honum..en ein spurning..finnst ykkur hinum að ég sé að fyrirgefa of stóra hluti..? Væri gaman að fá að vita það..ekki það að ég sé að sjá eftir einhverju eða eitthvað svoleiðis..

Ég veit að mörgum finnst of mikið að vera að binda sig svona eins og ég er að gera með þessari manneskju..mér fannst það líka áður en ég byrjaði með honum..það er svo ótrúlegt hvað margt hefur breyst hjá mér varðandi hvað mér finnst um hluti eftir að ég byrjaði með honum..

Ég vil virkilega mikið vera í sambandi með þessari manneskju af því hann er mér allt og ég elska hann meira en allt allt í heiminum..!!

Ég er ekki alveg viss afhverju..en mig langaði bara til að skrifa þetta niður..og deila með ykkur hinum og þá sérstaklega –honum- og vinum mínum..

Ætla að reyna að hafa þetta ekki lengra..er nú þegar orðið of langt….takk fyrir að lesa..ef þið gerðuð það..=)




*Vona að hann rekist á þetta og lesi..þó svo að hann viti þetta mest allt sem ég var að skrifa..vildi bara sýna það einhvernveginn hvað manni getur þótt svo vænt um manneskju..<3*
Wheee!