Eins og oft hefur verið kvartað yfir hérna á áhugamálinu er ekki hægt að stóla á fólk. Amk ekki ef það skortir sömu geðveilu og margir hérna deila með mér. Þess vegna erum við í Espresso núna í vandræðum, þar sem við erum ekki með almennilegt crew, og við erum búnir að missa manneskjuna með kameruna!

Þess vegna langaði mig til að auglýsa eftir áhugasömum sem væru til í að vera með okkur í að taka magnaða mynd í sumar. Okkur vantar aðallega hljóðmann (eða öllu heldur boom operator, þarf ekki að hafa neina sérstaka reynslu neitt frekar) og svo myndatökumann sem á myndavél. Og auðvitað er öll hljálp vel þegin, þannig að ef þig langar að vera með, en ekki í þessum störfum, máttu endilega senda okkur tölvupóst.

Það þarf auðvitað ekki að taka fram að við getum ekki borgað neinum, þar sem við erum að gera þessa mynd fyrir nákvæmlega ekki neinn pening, en hér ætti að vera gott tækifæri fyrir áhugamenn að öðlast reynslu, og ef vel tekst til verður þetta gott í ferilsskrána.

Eins og ég segi erum við bara að leita að fólki sem hefur áhuga á kvikmyndagerð og langar að fá eitthvað að gera í sumar. Við stefnum að því að taka þessa mynd um helgar (og væntanlega einhver kvöld á virkum dögum ef við getum) í júlí og ágúst. Tökuplanið er reyndar ekki alveg tilbúið, svo þetta gæti allt saman breyst. Og það þarf auðvitað ekki að taka fram að við erum bara að leita að fólki sem er tilbúið að taka þetta alvarlega, að mæta alltaf og gefa sig í þetta. Endilega, allir sem halda að þeir séu réttu mennirnir/konurnar í þetta, hafiði samband við mig í gegnum tölvupóst á eyvindur@hi.is. Nánari upplýsingar eru að finna á http://www.espressofilms.tk

Kærar þakkir!

Veftímaritið Ónan
http://www.onanis.tk
eyvindur@onanis.tk

misery loves company
ókey, við hljómum eins og tom waits, get over yourself!
http://www.miserylovescompany.tk
mlc@miserylovescompany.tk</a
We're chained to the world and we all gotta pull!