Miðað við þessar upplýsingar sem þú gefur upp myndi ég giska á að vandamálið sé hjá skjákortinu, þú getur útilokað minni+örgjörva því að þá myndu engin ljós kvikna (á t.d. lyklaborði (num lock ljósið)) eða pípið heyrast. Prófaðu allavega að taka allt úr kassanum nema móðurborð, örgjörva og minni. Ef það virkar, pípið kemur og ljósin kvikna, láttu þá skjákortið í, ef það virkar seturðu harða diskinn í, svo geisladrifið og svo diskettudrifið.