Þú formattar sko með því að setja windows diskinn þinn inn og setur windows upp aftur, skilurðu? Þú getur ekki formattað diskinn meðan þú ert að keyra stýrikerfi af þessum sama diski.
Hvernig dettur þér í hug að það sé einhver hérna sem sé ekki skítsama um einhver blogkerfi, þetta heitir vefsíðugerð, ekki blogg… Það er sér áhugamál, og ef það er ekki nóg, þá er líka netið áhugamál og þetta á meira heima þar.
Staðallinn heitir reyndar XMPP (sjá http://www.google.com/talk/developer.html) en þar sem Jabber notar þann staðal líka þá er hægt að nota sömu forrit fyrir þetta. En eins og bent var á rust þá er þetta ennþá í þróun, það má oft sjá slíkt á því að ef það er búið að skeyta ‘Beta’ við nafnið þá er það beta.
Ef það er bara þessi síða, þá geturðu náð þér í cutenews. En þú ættir kannski að skoða wordpress, þ.e. nema þú sért að fara að vera með eitthvað mjög flókið. Svo geturðu líka leitað á hotscripts, http://www.hotscripts.com
Voruð þið ekki svona meira að spá í því ef það væru einhverjir hönnuðir sem eru vanir því að búa til auglýsingapésa eða setja upp fréttabréf (svona t.d.) séu fengnir til að hanna útlit á vef, og svo er útlitið alveg útúr sýrt og með hræðilegu aðgengi svona fyrir vefsíðu.
Nú er ég ekki atvinnu vefari. En hvað með að segja annað hvort að þú sért eiginlega kominn með annað útlit (s.s. segja honum að þú sért búinn að skrifa það og það sé svolítið mál að gera það uppá nýtt með hans útlit). Eða koma með eitthvað algjört bull… Rugla bara í honum um að þessir litir eða form passi ekki alveg saman.
Já… Þetta forrit er með geðveikt hljóðgæði. Hér sit ég við lappann minn og með eitthvað innbyggt hljóðkort og spjalla við fólk eins og ekkert sé (hafði aldrei notað micinn áður og þurfti ekki að stilla neitt til að nota þetta, það þarf í flestu öðru). Og maður heyrir mjög skýrt og greinilega og án alls svona suð/truflanir drasl. Þetta er allt sem maður þarf, og ef maður þarf að senda fæl þá er líka miklu fljótlegra að senda hann bara með email (flipi beint fyrir neðan nafnið á hinum) með...
http://www.cs.uu.nl/docs/vakken/inp/downloads/php1.pdf hér er eitthvað fleira http://www.google.com/search?hl=en&q=filetype%3Apdf+intext%3A%22php+for+beginners%22&btnG=Google+Search
Ok… Segjum sem svo að þú myndir gera þetta svona. Hvað myndi ég gera? Auðvitað prófar maður að gera eftirfarandi… http://www.síða.eitthvað?j=../../../../../../../../../etc/passwd' "// t.d. Svo er líka hægt að komast að mjög mörgu svona, þetta sem þú ert að gera þarna er a.m.k. ein stærstu mistök sem þú gætir hugsanlega gert.
Nei, ég er bæði búinn að googla þetta o.fl. og ástæðan er víst að þetta er ekki hægt nema þú sért með sama kubbasett. Ég hef náð að nota sama win installið á tveim Aopen móðurborðum. En svo reyndi ég núna að skipta milli MSI og DFI og það virkaði ekki (enda DFI borðið mun nýrra). Skiptir ekki, installaði bara aftur á annan disk.
Af hverju ætti gott stýrikerfi sem leyfir notandanum að stilla hluti eftir því sem maður vill. Tweaka allt í botn og láta vélina keyra eins og þú vilt, og bara eins og þú vilt.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..