Mér finnst rjúpur nokkuð góðar, þó þær séu stundum sterkar, en ég ét ekkert gat á mig af þeim, svo er líka “jólalykt” af þeim. Ég og pabbi hamflettum alltaf rjúpurnar sem við fengu, hann veddi þær stundum sjálfur, og svo tókum innan úr þeim sem var mjög gaman. Í eftirmat var Toblerone ís sem var MJÖG GÓÐUR og ég át oftast á mig gat af honum. Munið þið eftir þegar rafmagnið fór af á aðfangadagskvöldi? Það var geðveikt gaman, þá þurftum við að byrja á því að opna pakkana og síðan borða því...