Mér líst mjög vel á það að safna undirskriftum til að fá BBC aftur, það þarf bara einhver að taka sig til og byrja á honum. Einnig myndi ég skrifa undir til að fá svona jazz/funk/blús stöð, það var ein solleiðis einu sinni, var alltaf að hlusta á hana, en hún entist ekki lengi. Ég er búinn að fá nóg af allri síbyljunni og vill fá e-ð betra, s.s. klassík, jazz og BBC. P.S. Mér fannst útvarp Mandólín vera frábært framtak hjá stelpunum sem stóðu að þeirri stöð, synd að hún héldi ekki áfram.