Mér langar að segja frá skoðunum mínum á hnökkum…

Hnakkar eru strákar sem gera allt fyrir allt kynlíf með fallegum stelpum (jefnvel ekki fallegum ef út í það er farið). Þeir aflita á sér hárið, fara í ljós og gera ýmislegt fyrir útlitið. Þeir eiga flotta bíla og pikka upp gellur á rúntinn. Að mínu mati eru þetta frekar sorglegar týpur. Sorglegustu týpurnar eru nú samt gaurarnir sem viðurkenna ekki að þeir séu hnakkar og bögga þá sem eru með sítt hár eða ganga ekki í níðþröngum gallabuxum.
Þetta eru gaurar sem lifa fyrir djamm og ríða svo einhverjum blindfullum gellum og eru stoltir af því. Senda svo rómantískt sms og hössla á marga vegu.

Ég er samt búin aðsjá það út að hnakkar eru töffarar útaf fyrir og finnst mér líka fáránlegt þegar ljótir strákar sem hlusta bara á Slayer og Metallica heima hjá sér og hafa aldrei verið með gellu séu böggandi þá á netinu.
Þeir sem bögga hnakka eru einfaldlega öfundsjúkir því þeir geta verið með gellum og eru sætir (alveg fáránlegt að sjá gaur með toppinn upp og strípur í þröngum gallabuxum og allan pakkan en hefur ekkert útlit, gaman af því) en ekki einhverjir síðhærðir naglar sem bögga allt og alla á netinu en þora engu sjálfir.

Þess vegna vil ég ekki vera með neitt bögg, ég er mjög ánægður með sjálfan mig og minn stíl. Þeir eru mjög ánægðir með sitt líf og sinn stíl.