Ég er sjálfur með 12x Plextor skrifara sem hefur ekki búið til eina einustu glasamottu í þetta tæpa ár sem ég hef átt hann. Ég var einmitt hræddur við að nota hann í venjulega vinnslu útaf einhverju, veit ekki hverju. Þannig að ég nota alltaf hitt drifið sem ég er með, sem er Toshiba DVD, til að lesa diska. Ég nota skrifarann bara til að skrifa …. Ég hef líka tekið eftir því að Toshiba drifið er bara miklu betra les-drif, sérstaklega þegar maður er að rippa diska og þannig.