AJAX fyrir byrjendur (Greinin birtist einnig á vefnum mínum, http://haukur.hot.is/pages/65) Nei, við erum ekki að fjalla um rúðu-úða eða önnur hreinsiefni! Í þessari grein ætla ég að fjalla aðeins um eitt af nýju “buzz”-orðunum í bransanum í dag, nefnilega AJAX. AJAX stendur fyrir Asynchronous Javascript And XML eða “Ósamstillt Javascript og XML”. Það sem þetta þýðir í raun, er að nota Javascript inn í vafranum til að gera HTTP köll, hvort sem það er GET eða POST, á bakvið tjöldin ef svo má...