Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gylfis
gylfis Notandi frá fornöld 24 stig

Re: Tilkynning frá Oldies Samsteypunni.

í Half-Life fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Heill þér foringi vor, Willkill!´ Þér ratast satt orð af vörum sem svo oft áður. Ég vil þó bæta einu við sem ekki kom nógu skýrt fram: Við sjáum líka illa (sumir nánast ekki neitt). Þess vegna legg ég til að í breytingunum á CS verði því komið á að fyrir ofan höfuð allra andstæðinga [.Oldies.] komi stórt rautt skilti sem á stæði “KILL ME”. Svo má auðvitað bæta við að andstæðingar okkar hafi aldrei fleiri en 3 skot í byssunum. Það myndi hjálpa dálítið sko. Kveðja, [.Oldies.]GilliBoy

Re: Aldurstakmark í cs clön.

í Half-Life fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Jei! Kannski kemst ég í Murk?!?!?! Ég hélt að ég þyrfti að stofna sjálfur oldies/geezers klan því ég er 41 árs. Er samt obbosslega lélegur í CS, skiptir það nokkru?

Re: Útrýming stæla á serverum

í Half-Life fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Gott hjá þér Zirius. Ég er sammála þér í flestu. Ég er ekki noob í CS en ég er heldur ekki mjög góður. Ég hef samt gaman af leiknum. Ég vil bæta einu við: Í flestum (ef ekki öllum) borðum á annað liðið að ‘kampa’ meira en hitt, þ.e. ætlast er til að annað liðið geri árás og hitt verjist. Samt, ef maður leggst í vörn, þá væla andstæðingarnir um að maður kampi út í eitt. CS var hannaður sem teamplay-leikur en ekki þannig að bæði liðin ættu að rusha eins og klikkaðar kanínur út um allt borð. Og...

Re: Gengur ekki að tengjast Símnet-serverunum

í Half-Life fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Fékk þetta við fyrispurn til Símans-internet: ——— Sæll, Gæti verið að einhver haxxer hafi verið með þessa ip ? ertu með fast ip ? þetta er svona það helsta sem að mér dettur í hug bara að þú sért ignored á þessum serverum. Annars er best að tala bara við einhvern admina þeirra á ircinu #counter-strike.is sennilega þinn besti sjéns að ná til botns í þessu :) Með kveðju, Knútur Óli Magnúson. Þjónustufulltrúi Þjónustuveri Símans, Síminn Internet Sími: 800-7000 velja 3 svo 1...

Re: Gengur ekki að tengjast Símnet-serverunum

í Half-Life fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Já, ég næ að tengjast öðrum serverum en bara ekki Símnet-serverunum. IP-bann? Þarf maður ekki að hafa gert eitthvað af sér til þess? Ég svo stiltur og prúður drengur sko að það getur ekki verið :-)

Re: Tracker error í dod

í Half-Life fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Takk fyrir þetta Verdict. Gerði eins og þú sagðir og villuboðin birtast nú ekki lengur. Á bara eftir að sjá betur hvort laggið er horfið :-)
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok