Tilkynning frá Oldies Samsteypunni. Tilkynning frá Oldies samsteypunni:

Við Oldies menn mótmælum harðlega og gremjulega á allann hátt mögulegann öllum þessum tröppum og stigum á þeim möppum sem spiluð eru í CS.

Það er með öllu óþolandi að gamalt og (mis)veikt fólk sé rekið upp og niður tröppur,rampa,stiga,gegnum glugga,yfir brýr (í misgóðu ástandi) og ofaná allt undir harðri skothríð og handsprengjukasti (frá nalla).
Lyfjakostnaðurinn eftir eitt slíkt rush er næstum óbærilegur.Ef við spiluðum ekki í boð Lyfju Lágmúla þá sé ég ekki hvernig þetta væri hægt.

Við skorum hér með á stjórnendum þessa leiks að taka tillit til okkar heldri spilara og bæta nú ÞEGAR úr þessu.

Máli okkar til stuðnings bendi ég á þetta,hefur einhver,einhverntíma séð Oldies menn campa uppí turni á cbble? Ó nei aldrei,sá turn er okkur jafn fjarlægur draumur og æskan sjálf.

Ekki er heldur gaman að “rusha” brú á aztec þar sem sú brú stenst enga staðla né myndi hún þola nokkra úttekt opinberra eftirlitsmanna,það getur verið afskaplega pirrandi (og slæmt fyrir gigtina) að ná upp fínu rushi alveg uppá brú vaða útá þetta ræskni og BLAMMM ! allt flækist saman í stóra hrúgu af göngugrindum,hjólastólum,súrefniskútum og hækjum og allt situr fast og BÆNG ein handsprengja (nallinn) og við látum allir lífið.


Nei við þetta verður sko ekki búið lengur,við sækjum nú fram í öllum okkar krafti til að fá þessu breytt.
Oldies samsteypann gefur hér með stjórnendum þessa leiks nákvæmlega EINA viku til þess að gera úrbætur á öllum þessum þáttum.

Annars munum við…… gera nákvæmlega ekki neitt.

Ég skora á ykkur félagar í ykkar algera máttleysi að láta heyra í ykkur hér að neðan.

Ekki að það skipti nokkru máli.

Með ósk um lengra líf.
[.Oldies.]Willkill4food

Oldies… Ekki snöggir upp en öruggari en VOLVO.