Ég spila nú ekki CS og DoD á hverjum degi en fyrir um 2-3 vikum þá lenti ég í því að geta ekki tengst neinum Símnet-serverum. Ég hef prófað að setja IP-tölurnar aftur inn (a.m.k. fyrir Simnet-Mania) en það breytir engu.

Þegar ég er í HL og tvísmelli á einhvern Símnet-server þá reynir HL að tengjast í 10 sekúndur og svo kemur “Cannot connect to server”. Sama gerist þegar ég vel “Refresh selected server”. Þegar ég setti IP-töluna fyrir Mania serverinn aftur inn þá reyndi HL líka að tengjast í 10 sek. án árangurs.

Hef ég ekki fylgst með? Er Síminn búinn að loka serverunum eða hvað?

Getið þið hjálpað mér snillingar? Það vantar mikið þegar Símnet serverana vantar.