Á svona fimmtu mínutu í leiknum fékk Ronaldo boltann og boltinn skoppaði svona fyrir framan hann. Svo kom Boulahrouz vaðandi í hann og bombaði sólanum í innanvert lærið á honum. Þetta var alveg svakaleg “Tækling”. Eftir það haltraði Ronaldo í svona 10 min áður en honum var skipt útaf. Boulahrouz fékk gult fyrir þetta en fékk svo rautt ef ég man rétt seinna í leiknum.
Ronaldo er nú sterkur líkamlega þannig að það þyrfti eitthvað mjög stórt til þess að meiða hann. Ég er samt ekki búinn að gleyma því það sem Boulahrouz gerði við hann í Holland-Portúgal 16 liða úrslitum HM.
Ég skil þig. En það sem ég er að segja þó að Dirk missi af einum leik þá ættu Dallas þó að getað unnið leiki. Þess vegna meikar mest sense að gefa Gilberto Arenas eða Kobe Bryant titilinn MVP því ef þeir detta í meiðsli geta liðin þeirra ekki neitt án þeirra.
MVP er bara verðmætasti leikmaður deildarinnar alveg eins og í NFL bíst ég við. Það er þá spurning hver það er. Ólíklegt þykir mér þá að Dirk vinni þetta þar sem allt Dallas liðið er sterkt. MVP ætti að fara til annaðhvort Steve Nash, Arenas eða Kobe.
Ég hef trú á að Chicago hrökkvi núna í gang og raði leikjum núna á næstunni og komist langt í úrslitakeppninni. Hvað eru samt eiginlega margir leikir hvert tímabil? 90?
En oftast þegar brettið rennur frá manni er þegar maður er að hika upp fjallið og maður heldur oftast á brettinu þá. Maður er þá ekkert með þessa ól fasta við sig. Það var allavega eitt skipti sem gerðist fyrir mig þegar ég missti brettið mitt niður allt Hlíðarfjall og þá meina ég allt! Ólin hefði ekki gert neitt í að stoppa það.
Henke er maðurinn! Annars fannst mér Iniesta átt líka mjög stóran þátt í sigrinum. Snilld að Arsenal er dottið út úr keppninni núna btw… með hverjum helduru núna?
Þetta voru augljóslega bara ýkjur hjá spartverjanum Delios sem var að segja söguna við herliðið sitt í lokin til þess að peppa menn upp fyrir bardagann mikla. Í þeirra augum voru Persarnir óvinirnir og reyndi hann bara að líkja þeim við skrímslum til að gefa söguna um 300 hermennina hetjulegri frásögn.
Ég skil ekki alveg afhverju fólk er svona svakalega hneykslað yfir hversu Persarnir eru látnir líta illa út. Muniði virkilega ekki hver er að segja frá sögunni?
Ac Milan - Bayern Munchen, ég tel að bayern vinni meistaradeildina í ár PSV - Liverpool pff Roma - Man utd United tekur þetta með reynslunni en erfitt verður að eigast við ógnarsterku miðju Roma Chelsea - Valencia, valencia eru með of lélega vörn
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..