það fer væntanlega eftir skóla en þú mátt búast við nóg af bókfærslu, hagfræði og öðrum viðskiptafræðigreinum. Mæli með viðskiptabrautinni, þetta er lang skemmtilegasta brautin ef þú hefur einhvern áhuga á viðskiptum.
Ég held það sé aðallega útaf því að fólk er kannski hrætt við hugsunina um að það sem þau trúa á sé ekki raunverulegt og því vilja þau að sem flestir trúi á það sama, þá líður þeim betur. Ekki taka því of persónulega.
Eftir að hafa lesið þetta þá fannst mér eins og að þú værir á móti kristinni trú og þér finnist fáranlegt að fólk geti verið að trúa einhverju svona bulli. Ég skil alveg afhverju þú trúir ekki og ég er eins og þú, ekki fermdur og hef voða litla trú á lífi eftir dauða en að vera á móti því að fólk sé að trúa á eitthvað yfirnáttúrulegt og líf eftir dauða finnst mér vera rangt. Fólk trúir útaf það er hrætt við lífið eftir dauðan og vill trúa á það að þegar ástvinur þeirra deyr að þá mun hinn sá...
fín gagnrýni hjá þér og skemmtilegar greinar. Mér fannst myndirnar báðar í heild alveg frábærar. Mun betri en hinar batman myndirnar en þær eru náttúrlega allar allt öðruvísi. Mér fannst forsaga Batman alveg frábær í Batman begins og hvernig sagan hefði þróast í The Dark knight alveg mögnuð. Ég vona bara að Nolan látist ekki undan þrýstingi frá framleiðendum við að drífa sig í þriðju myndina og komi frekar með gott handrit og aðra frábæra batman mynd.
nota milljarðinn til að lána smáfyrirtækjum á íslandi og sprotafyrirtækjum sem eru ekki að fá neitt fjármagn í dag. Bjóða þeim lánið með ásættanlegum vöxtum.
ég veit þetta er ein fáranlegasta hugmynd sem ég hef séð, fólk heldur kannski að fólk undir tvítugt sem er með fleira en einn farþega lendi oftast í slysum á föstudags og laugardagskvöldum. Það er beinlínis verið að svifta frelsi ökumannsins. En eins og ég sagði þá efa ég að þessi tillaga muni einhverntíman taka gildi.
ég væri til í að fólk myndi gefa þessari ríkisstjórn aðeins meiri séns. Það eru of margir sem eru að taka þessum tillögum um farþegafjölda ökumanna undir 20 ára um helgar full alvarlega en þetta eru bara tillaga um hvernig mætti betur fara í umferðinni og var gerð af einhverri nefnd á vegum samgönguráðherra. Það er alls ekki víst hvort þetta muni nokkurn tíma taka gildi eða vera tekið í frumvarp um breytingar á almennum samgöngum. Ég held að 18 ára aldurinn yrði mun líklegri til að taka í...
Hann var náttúrlega að vinna fyrir CIA þannig hann hlýtur að vera með nokkur mismunandi vegabréf til þess að komast hjá tollinum. Það er ein pæling. Svo minnir mig að hann hafi nú komið heim frekar laskaður. Hann var allavega í fatla í lokaatriðinu ef ég man rétt.
Ég hlakka líka mjög mikið til að sjá þessa mynd. Michael Mann að leikstýra tveim bestu leikurunum í dag. Algjör unaður. Vona að þetta kvikmyndaár verði betra en 2008.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..