Þó að þessi grein sé gömul langar mig að leggja orð í belg. Ég kynntist Jazzi í gegnum foreldra mína, þá sérstaklega pabba sem er mikill jazzunnandi þó hann spili ekki sjálfur á hljóðfæri. Þannig hefur maður haft Jazz í eyrunum allt frá móðurkviði (Miles, Louie, Dizzy, Jim Hall o.fl. o.fl.) og þannig í raun ekki hægt annað en að fíla þessa frábæru músik. Þegar ég var yngri var ég hinsvegar alltaf að leita að “púra” jassi, þessum með 4/4 takti og gangandi bassa og sólóum frá trompet, sax og...