Ef menningin fjarlægist mennina, eins og hún virðist gjarnan gera, þá hlýtur hún að vera dauðadæmd. List snýst um að snúa uppá takka tilfinninga í brjósti fólks. Ef hún er ekkert í takt við fólkið, þá snertir hún engan. Markaðsvæðing listarinnar þarf ekkert að vera neikvæð og niðurnjörvandi. Er eitthvað verra að þurfa að þóknast markaðinum - fólkinu í kringum þig - en að vera sífellt undir hælinn á einhverjum bjúrókrata hjá ríkinu kominn? Markaðurinn er ekki eina skoðanalöggan.