Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Einhver annar??

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hvað er að Nightwish??

Re: Hækka

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Er með oldschool Technics magnara + hátalara sem eru stærri en sjónvarpið mitt. Magnarinn er með volume takka á skalanum 0 til 10. Hef hækkað upp í þrjá en þá byrja húsgögnin mín að skoppa um herbergið þannig að ég hef aldrei þorað að hækka meira. Það sem meira er er að hljómgæðin eru ekkert byrjuð að skerðast á þrem þannig að græjurnar ráða við mun meira :-)

Re: Athugaðu litarskyn þitt

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Gamalt. Þegar ég sá þetta fyrst var ég að blasta Manowar í tölvuhátölurunum (er með kerfi með bassaboxi þannig að það er alveg ágætur hávaði í þessu hjá mér) og svo akkurat á milli laga kemur þessi kellingarandskoti með tilheyrandi öskrum. Konan sem býr á efri hæðinni heyrði í henni! Mér brá.

Re: Þynnka

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Poweraid og íbúfen. Svínvirka

Re: Fíkniefna leitað í miðborginni með aðstoð hunda...

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Eða það :-/

Re: Fíkniefna leitað í miðborginni með aðstoð hunda...

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Í þessu drauma-fasistasamfélagi þínu. Fasistasamfélag? Nei Skuggi, ég er bara raunsær. Ég veit hvernig þetta virkar og ég þori alveg að viðurkenna það. Draumasamfélagið þitt er það sem kallast Anarkismi og á aldrei eftir að virka. Við búum núna í Lýðræðissamfélagi þar sem meirihlutinn vill ekki að þessi efni séu lögleg. Þú verður bara að sætta þig við það eða flytja eitthvert annað.

Re: Yes ég var að fá nýar gardýnur nema.......

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ertu semsagt rík kelling?

Re: Cow & Chicken

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Amms, held að þeir hafi byrjað í kring um '95 :-/ Man ennþá eftir því þegar þetta var frumsýnt.

Re: Cow & Chicken

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ha?!? Eru þessir þættir allt í einu gamlir :-/

Re: Fíkniefna leitað í miðborginni með aðstoð hunda...

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég held að enginn sé sammála þessu að það eigi að neyða almenning til þess. Ég held að þú hallist að þessu eingöngu af því þú vilt ekki viðurkenna að slíkar frelsisskerðingar séu rangar. Neibbs, það er mjög rangt hjá þér. Miðað við núverandi ástand í heiminum þar sem olía er af skornum skammti og við erum ekki komin nógu langt í þróun á öðru eldsneyti hugsa ég að sniðugasta lausnin væri hreinlega að banna einkabílin þangað til vandamálið hefur verið leyst. Sem upprunalegi tilgangur var til...

Re: Fíkniefna leitað í miðborginni með aðstoð hunda...

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Við einfaldlega eigum ekki að banna óholla hluti. Það er ekkert sem réttlætir að stjórnvöld hegði sér eins og foreldrar fullorðina einstaklinga. Jú, þeir eru kosnir af okkur til þess að sjá um stjórnun og lagasetningu fyrir okkur. Það er alveg hægt að banna einkabíla en samt reka þjóðfélagið. Ímyndaðu þér ef allir sá peningur sem fer í rekstur þessara 150.000 einkabíla myndi fara beint í almenningssamgöngur. Það er alveg hægt að banna einkabílinn, reka samgöngukerfi á sköttum og neyða alla...

Re: Fíkniefna leitað í miðborginni með aðstoð hunda...

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Af því ekkert réttlætir skerðingu frelsis byggt á fordómum. En, eins og ég sagði áður, þá er þetta ekkert byggt á fordómum. Við vitum nákvæmlega hvað þessi efni gera og við vitum nákvæmlega um skaðsemi þeirra. Að banna fíkniefni er ekkert skárra en t.d. að banna einkabíla eða sígarettur. Sígarettur eru fíkniefni. Einkabílar eru nauðsyn fyrir marga, þó svo að Íslendingar séu kannski frekar extreme í bílaeign. Hefði ekkert á móti því að nota almenningssamgöngur ef þær virkuðu fyrir mig, en þær...

Re: Dagbókin hans Dodda/Dúa

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hehehe, man eftir þessu. Voru fyrst sýndir á RUV

Re: Fíkniefna leitað í miðborginni með aðstoð hunda...

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ef þeir ráðast á fólk eða framkvæma aðra skerðingu á frelsi þá mega lögreglan og dómsvaldið grípa inn í. Af hverju ekki bara að spara þeim þá vinnu? Best að uppræta þetta algjörlega, þá er þetta ekkert vandamál lengur.

Re: Fíkniefna leitað í miðborginni með aðstoð hunda...

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Jú, af því þú býrð í sama samfélagi og þessir menn. Plús það að þetta gæti verið aðstandandi.

Re: Fíkniefna leitað í miðborginni með aðstoð hunda...

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Dóp fer vanalega verst með þá sem hafa önnur vandamál áður. Veistu hvað það er líklegt að geðsjúklingur verði strax fíkill? Veistu hversu stórt hlutfall dópista eru með deðræn vandamál? Mín reynsla er allavega annar hver. Samt bara 50%

Re: Lögreglan og vopn framtíðarinnar

í Deiglan fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Nú? Ó.. Ahem…

Re: Fíkniefna leitað í miðborginni með aðstoð hunda...

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Flestar árásir eru framdar undir áhrifum áfengis. Af því að það eru fleiri sem drekka en nota hin efnin. Þetta er eins og með mæður barna með Downs heilkenni. Eftir 35 ára aldurinn aukast líkurnar á því að móðir eignist barn með Downs heilkenni og eftir fertugt eru líkurnar orðnar 50%. Þannig að það eru mestar líkur á því að kona sem er komin yfir fertugt eignist barn með Downs heilkenni. Samt voru flestar konur sem eignuðust börn með Downs 25 ára þegar þær eignuðust börnin. Af hverju...

Re: Fíkniefna leitað í miðborginni með aðstoð hunda...

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hvort kom hænan eða eggið fyrst? Vá hvað þú ofnotar þetta máltæki í öllu sem þú talar um! Hvort kom á undan? Maður byrjar í dópi Maður missir stjórn á dópi Maður fer í ræsið Mjög einfalt. Það sem þú áttar þig samt ekki á er að á hversu sinni eru þúsundir manna í ólöglegri neyslu á Íslandi. Því er það augljóslega minnihlutahópur sem endar í meðferð eða glæpastarfsemi. Þúsundir er mjög teygjanlegt en jæja. Þetta fer náttúrulega eftir einstaklingum, en eins og málið er í dag að þá eru kannski...

Re: Iron Maiden - The X Factor

í Metall fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Mjög góð plata. Enn einn punktur, lagið Man On The Edge er bygt á myndinni Falling Down ;-)

Re: Fíkniefna leitað í miðborginni með aðstoð hunda...

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Jú, fíkniefni skerða frelsi þeirra sem lenda í því að vera í kring um þann sem notar efnin. Þessu fylgir oft ofbeldishneigð. Flestar nauðganir og líkamsárásir eru framdar undir áhrifum vímuefna. Og ekki koma með áfengisrökin af því það er bara tölfræðitrikk. Eins á niðurtúrnum, sem veldur því að fólk fær sér annan skamt til þess að ná sér upp úr niðurtúrnum og verður á endanum andlegt og líkamlegt úrhrak sem er algjörlega upp á aðstandendur sína kominn. Oft velur fíkillinn sér einn vin eða...

Re: Fíkniefna leitað í miðborginni með aðstoð hunda...

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þangað til í gær hefði ég verið ósammála þér. Akkurat núna hef ég engin not fyrir bíl. Afhverju heldurðu að eins margir falli í ræsið fljótlega eftir að byrja á þessum efnum? Það er meira en að segja það að nota þessi efni hóflega.

Re: Fíkniefna leitað í miðborginni með aðstoð hunda...

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ok, en samt vilt þú lögleiða efni sem valda frelsiskerðingu fólks :-S

Re: Fíkniefna leitað í miðborginni með aðstoð hunda...

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hvernig geturðu borið saman akstur og fíkniefnaneyslu? Annað steikir í þér heilan, hitt ekki.

Re: Fíkniefna leitað í miðborginni með aðstoð hunda...

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Amms, en mun fleiri eiga eftir að prófa og lenda í vandræðum út af neyslu heldur en núna. En þó að þau prófi það. Ekki mín ábyrgð. Fólk má dópa sig mín vegna. Ég ber ekki ábyrgð á þeirra neyslu. Þú ert ekki frjálshyggjumaður. Þú ert einstaklingshyggjumaður.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok