Var á Earthshaker Festival um daginn og varð ekki var við mikið þunglyndi, ásamt því að sjálfsmorðstíðni var engin og það voru engin ofbeldisverk framin. 30.000 manns voru þarna samankomin, engin slagsmál, fólk geymdi bjórinn sinn fyrir utan tjöldin án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að honum yrði stolið og engri stelpu var nauðgað. Þess má geta að öryggisgæslan var ekki til staðar, sá einu sinni einn öryggisvörð á vappi um tjaldsvæðið og það voru af og til öryggisverðir við hliðið inn...