Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gomamiso
gomamiso Notandi frá fornöld 36 ára kvenmaður
808 stig Sambandsstaða: Á lausu
Hefur áhuga á: Körlum
Vatn er gott

HVAR? ætla allir að mæta? (17 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Sko, langaði bara að spyrja (til þess að fá þetta á hreynt) Hvert ætlið þið í röð? Málið er bara að það er hálfhallærislegt að kalla yfir fólk “Er einhver af HUGA hérna?” …og svo svarar enginn… <:O) Eða bara vera með skilti eins og gulla369griz benti á ;O) Vildi eiginlega bara vita þetta upp á kannski hópmynd af huga fólkinu, svona í seinasta sinn (eins og bent var á hér í fyrri korki).

Panta bækurnar? (4 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Ok, ég er rosaleg þegar kemur að einhverju sem heitir að panta. Ég hef alltaf beðið í röðinni og hef aldrei hugleitt það hið minnsta að hægt væri að panta bækurnar í bókabúðum. En það sem ég vildi spyrja að er, er mikið af Harry Potter and the Deathly Hallows pantaðar sem eru að koma hingað til lands? Fær maður ekki örugglega einhverra bók?

Voldemort og neglur... (5 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Er það bara ég eða er Voldemort með hjúds neglur!?… Ef svo er, þá er ég mjög vonsvikin gagnvart myndinni. Hef aldrei náð þessu með vonda menn og langar neglur, þetta er bara svo hallærislegt! Það er ekki eins og hann þurfi skæri til þess að klippa sínar… meina, hann er ekki einu sinni mannlegur..

STRÆTÓ! (14 álit)

í Deiglan fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Hvað er eiginlega málið með þessar strætóferðir í dag?! Endalausar breytingar, og notabene, ekki til hins góða! Ég varð virkilega pirruð að heyra af þessu breyttu leiðum, sérstaklega þar sem strætóarnir ganga á 30 fresti allan daginn!! (undantekningar) Ég veit ekki hvort þessar nýju leiðir séu betri en var fyrir marga, en fyrir mig eru þær hræðilegar! ég get ekki tekið strætó fyrr en 07:14 til þess að komast upp í Hamraborg og þaðan niður í Kringlu og Ártún. Þá er klukkan orðin 08:05 þegar...

Spil (7 álit)

í Harry Potter fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Mig langaði að spyrja hvort það muni einhver eftir spili sem heitir “Undir sólinni”? Þetta spil er frá 89' svo ég veit ekki alveg hvort einhver kannast við það :O/ en það er einhverskonar Trivial Pursuit-þema í því. Spilið er í fjólubláum kassa og er frá Iðunni… en málið er að ég á ekki leiðbeiningarnar svo mig vantar eiginlega að vita um nokkra hluti sem eru óljósir, því þetta spil er nokkuð skemmtilegt, þrátt fyrir aldur. En ég veit að þessi korkur á víst ekki heima á þessu áhugamáli en...

vissuð þið þetta...? (10 álit)

í Harry Potter fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Er ég búin að missa af einhverju eða er þetta eitthvað sem hefur komið framm? (tekið af http://en.wikipedia.org/wiki/Mundungus_Fletcher) “Harry Potter and the Half-Blood Prince, Harry catches Mundungus outside of the Three Broomsticks trying to sell Sirius Black's property (which now belongs to Harry after Sirius' death) to Aberforth Dumbledore. Mundungus goes into hiding but is later jailed in Azkaban for impersonating an Inferius during a botched robbery. It appears that the Order may have...

Vantar mynd.... (12 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Ég er búin að vera að pæla mikið í þessum gömlu góðu myndum (sá einmitt kork hérna um gamlar góðar teiknimyndir og fleira) og málið er það að ég á svakalega fáar…. við erum að tala um það að ég á ekki einu sinni Aladdin og Lion King. Svo ég var að pæla hvort að einhver gæti sagt mér hvar hægt væri að nálgast eitthvað af þessum klassísku myndum, þ.e.a.s. á íslensku? T.d. Nemo litli, prinsessan og durtarnir, Aladdin, Lion King, Tommi og Jenni mála bæinn rauðan, Fuglastríð…og áfram má telja…...

Superman spurning (6 álit)

í Myndasögur fyrir 17 árum, 5 mánuðum
mig langar að spyrja að einni spurningu um Superman. Kærastinn minn var að tala um það að það er til saga sem er um superman en hún byggist á því að honum var skotið nokkrum klukkutímum fyrr frá plánetunni sinni og þá lenti hann í Rússlandi og hjálpaði sem sagt Rússlandi að verða eitthvað betra eftir að Stalín /Lenín var dáinn (man aldrei hvor var hvað)… sagan er sem sagt í raun þannig að plánetan sem hann kom frá er í raun jörðin, en bara í framtíðinni. Þannig ég spyr, veit einhver hvað...

Sambandi við teikningarnar... (7 álit)

í Myndasögur fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Væri ekki sniðugt að laga uppsetninguna á myndunum sem við erum búin að vera að senda inn? Myndirnar eru þvers og kruss… Ég hvet nýja stjórnandan endilega til þess að reyna hvað hann getur til að laga uppsetninguna og ef hann getur að reyna að bjarga hinum myndunum sem hafa verið sendar inn sem sjást ekki. :O) Kv.Katta

Harry, Carrie, and Garp Night 2 (7 álit)

í Harry Potter fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Jæja, ætlið þið hafið ekki séð þetta, allavega þið sem eruð á mugglenet.com endrum og eins ;O) Þetta er “charity” eða reyndar samkoma sem var 2 ágúst síðast liðin, þar sem Rowling las upp úr bók sinni og svaraði spurningum hjá fólki. Ég er með nokkrar spurningar/svör sem eru birtar á aðalsíðu Mugglenet.com og einnig tvær slóðir til gamans um Harry, Carrie, and Garp Night 2. (Myndir og solleiðis). Um Harry, Carrie, and Garp Night2: http://www.mugglenet.com/jkr/jonyc/night2/kate.shtml Myndir...

Er engin búinn að heyra... (22 álit)

í Harry Potter fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Er engin búinn að heyra að J.K.Rowling hefur gefið það út að einn af aðalpersónum HP muni láta lífið?…eða er ég ekki búinn að skoða allt hérna nægilega vel :O/ En ég sá þetta allavegana í mogganum í gær og ég sýndi pabba mínum fréttina. Þar stóð að margir HP-aðdáendur höfðu verið reiðir við hana útaf þessu; blótuðu henni og annað. Ég var einmitt að pæla aðeins í þessu með að hneikslast. Fólk var hneykslað vegna þess að aðalpersónur sögunnar eru jú Ron, Hermione og Harry. En þá minntist pabbi...

Búið að finna Luna Lovegood! (11 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Já, eins og þið kannski vitið er verið að velja leikara fyrir myndina. Hér fann ég nokkra á Mugglenet.com og annarsstaðar á netinu: Lily yngri: http://www.mugglenet.com/viewer/?image_location=ootp/susieshinner.jpg (líklega) James yngri: http://www.mugglenet.com/viewer/?image_location=ootp/robbie-jarvis.jpg Amilie Bones: http://www.britishtheatreguide.info/images/thomas.jpg Luna Lovegood: http://news.bbc.co.uk/cbbcnews/hi/newsid_4670000/newsid_4672700/4672798.stm Afsakið, nennti ekki að...

Afsakið miskilninginn...ehem... (0 álit)

í Myndasögur fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Já, ég hélt svo innilega að þemað væri “Uppáhalds teiknipersónan þín” …skjúsí. En allavega, gerði þessa mynd í photoshop (með touchpad mús…aha, jeee). Ekkert sérlega flókin mynd, tók klippti Kitty inn í bakgrunninn sem ég bjó til og smá viðbætur, ljósbrot og klippingar og voilá! En ég var með stillt á dekksta á skjánum hjá mér þannig að hún er svolítið ljós :O/… En já, vildi bara deila þessu.. p.s. var að reyna að gera myndina eins og það hefði verið tekið mynd af henni framan á einhverjum...

Drawclub mynd... (6 álit)

í Myndasögur fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Ég veit, þetta er ekki asnalega flókin mynd að skilja. Hún átti upprunalega að vera bjartari og betur gerð (ehem) en einhvernvegin fór ég út í þetta :O/… En ég hafði í huga að teikna mynd af stelpu og manni að leiða hana í burtu frá barnæsku sinni (dótið sem er að hverfa fyrir aftan hana). Þessi maður er í raun búinn að kaupa hana (eins og sést á miðanum í hendinni á honum) og er að leiða stelpuna í átt að dyrum herbergis síns (þar sem heimur fullorðna fólksins tekur við). Reykurinn er...

Afhverju er verið... (5 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 4 mánuðum
…að gera myndirnar þegar bækurnar eru ekki einu sinni komnar allar ÚT!? Ég varð að gera kork um þetta því þetta er búið að hrjá mig eins og exem frá því að þeir byrjuðu á því að framleiða þær. Við, aðdáendurnir, erum ekkert búin að gera annað en að væla yfir því sem vantar og var illa gert, val á leikurum og annað. Það er sífellt verið að skipta um leikara, breyta og myndirnar eru að flakka á milli leikstjóra. Er þetta ekki gott dæmi um það að bíða og sjá til með að gera myndirnar þegar...

Smá gagnrýni á (að sjálfsögðu) nýju myndina! (16 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Spoiler…ekki fara niður ef þú ert ekki búin að horfa á myndina og villt ekki að þetta spilli. Já, ég fór á Harry Potter á föstudaginn og var ekki með miklar né litlar væntingar. (passaði mig á því ;O). Ég mætti niður í Sambíóum í Álfabakka, voðalega hress og kát, klukkan hálf 7. (já ég er svolítið hörð á því að fá góð sæti). Ég og kærastinn biðum þarna í rólegheitum eftir að fólkið streymdi inn þar til klukkan 8. Þá datt einhverjum snillingi það í hug að opna (taka bandið frá) svo við...

a contract to God.. (4 álit)

í Myndasögur fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Hét hún ekki eitthvað svona, eftir Will Eisner? Mig langaði að spyrja um hvað þessi myndasaga er, ef einhver hefur lesið hana. (sá hana í myndaglugganum hérna)

wacom? (7 álit)

í Myndasögur fyrir 18 árum, 6 mánuðum
ég verð bara að spyrja, hvað er wacom? :O/

nudd... (12 álit)

í Heilsa fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Mig langaði að forvitnast um nudd :O/ málið er það að ég og kærastinn minn erum bæði slæm í bakinu. Við fórum í Mecca Spa að prufa svona einu sinni og það var alveg ágætt. En þar sem kærastinn minn er rosalega stífur og við bæði með vöðvabólgu í öxlum og háls var þetta nudd ekki sérlega “kröftugt” ef þið vitið hvað ég meina :O/ og var ekkert að gera fyrir okkur. Ég bað um nudd sem væri gott fyrir stífa vöðva, háls (kærastinn lenti í árekstri), mjóbak og eitthvað sem væri ekki ‘bara’ nudd....

The curse of monkey island (4 álit)

í Tölvuleikir fyrir 18 árum, 8 mánuðum
jámm, þessi leikur er greinilega ekki gerður fyrir windowsxp svo ég náði í ScummVM til að redda þessu og leikurinn er hættur að slökkva á sér og frjósa, þar til ég var komin þar sem slangan étur karlinn þá verður allt svart og upp kemur error um það að ekki er hægt að lesa einhverja skipun… hefur einhver hugmynd um hvað ég ætti að gera?

Voldemort... (5 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 8 mánuðum
H'er er eitt sem ég er búin að vera að pæla í, hvað var Voldemort að gera öll þessi ár eftir dauða Harry's? Var hann svo veikur að hann þurfti 11 ár til að komast aftur til valda og finna einhvern sem gæti hjálpað honum? Ég trúi því ekki að einn mesti galdramaður þessa tíma eyddi þessum árum í að leita að einhverjum til að treysta og fela sig í 11 ár…

Smá upplýsingar... (5 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Já, mig vantar smá upplýsingar. Ég hef greinilega ekki lesid bókin nógu vel, en hvar er detta rifrildi med Snape og Dumbledore sem allir eru ad tala um? :O)

Smá upplyfting (3 álit)

í Myndasögur fyrir 18 árum, 8 mánuðum
www.isketch.net (eins og kannski felstir vita af) fyrir þá sem vilja teikna eitthvað í stað þess að bíða hér í örvæntingu sinni… Annars, endilega komið með eitthvað sem þið vitið af. Leikir eða eitthvað sem tengist teikningu..

Hvenær kemur... (6 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
7.bókin út? Ég hef ekkert heyrt nema 2 ár, 4 ár…o.s.fr.

Opnun menntaskóla (9 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég er að velta fyrir mér hvar í ósköpunum MK opnar eiginlega. Getur einhver bent mér á það? Það stendur ekkert á síðunni þeirra… ástæða þess að ég er að spyrja er sú að ég er að fara til útlanda þann 13.ágúst og verð þar í viku. Vildi bara tékka hvort það myndi ekki alveg örugglega sleppa :O)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok