Er engin búinn að heyra að J.K.Rowling hefur gefið það út að einn af aðalpersónum HP muni láta lífið?…eða er ég ekki búinn að skoða allt hérna nægilega vel :O/

En ég sá þetta allavegana í mogganum í gær og ég sýndi pabba mínum fréttina. Þar stóð að margir HP-aðdáendur höfðu verið reiðir við hana útaf þessu; blótuðu henni og annað.

Ég var einmitt að pæla aðeins í þessu með að hneikslast. Fólk var hneykslað vegna þess að aðalpersónur sögunnar eru jú Ron, Hermione og Harry. En þá minntist pabbi minn á eitt sem mér fannst svolítið góður punktur:

Voldemort er ein af aðalpersónum sögunnar. Dauðinn er kannski ætlaður honum eftir allt saman.

En þá spyr maður sig, ætli að fólk verði þá eins hneykslað? Ef vondi kallinn deyr þá á allt að vera gott, eins og okkur hefur verið kennt í gegnum ævintýri og svona ;O)

æ, þetta var bara svolítil pæling, en ég vona að ég hafi ekki verið að skrifa eitthvað sem er þegar komið :O)

bleble…
Vatn er gott