Ég er búin að vera að pæla mikið í þessum gömlu góðu myndum (sá einmitt kork hérna um gamlar góðar teiknimyndir og fleira) og málið er það að ég á svakalega fáar…. við erum að tala um það að ég á ekki einu sinni Aladdin og Lion King.
Svo ég var að pæla hvort að einhver gæti sagt mér hvar hægt væri að nálgast eitthvað af þessum klassísku myndum, þ.e.a.s. á íslensku? T.d. Nemo litli, prinsessan og durtarnir, Aladdin, Lion King, Tommi og Jenni mála bæinn rauðan, Fuglastríð…og áfram má telja…

…ég er oft á amazon og ebay, en það er bara ekki alltaf hægt að fá HVAÐ SEM ER þar.
Vatn er gott