Mig langaði að forvitnast um nudd :O/ málið er það að ég og kærastinn minn erum bæði slæm í bakinu. Við fórum í Mecca Spa að prufa svona einu sinni og það var alveg ágætt. En þar sem kærastinn minn er rosalega stífur og við bæði með vöðvabólgu í öxlum og háls var þetta nudd ekki sérlega “kröftugt” ef þið vitið hvað ég meina :O/ og var ekkert að gera fyrir okkur. Ég bað um nudd sem væri gott fyrir stífa vöðva, háls (kærastinn lenti í árekstri), mjóbak og eitthvað sem væri ekki ‘bara’ nudd.
Vitið þið hvað er í raun best fyrir svona hluti? er sjúkranudd ekki í nuddstofum?
Vatn er gott